Um það bil 50 skjöl varðandi jarðeignir Helgafellsklausturs, að stærstum hluta um landamerki.
Límt yfir bl. 1r.
Árni Magnússon bætir við saurblaði, en á því eru upplýsingar um bókina sem hdr. var tekið úr (sjá fylgigögn).
Band frá því í nóvember 1973.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli sem skrifað er á að innanverðu.
Handritið er tímasett til 1606 í Katalog I , bls. 522, en það var áður hluti af Dómabók Gísla Þórðarsonar (sjá seðil).
Árni Magnússon fékk bókina sem handritið er tekið úr hjá Þórði Péturssyni á Hólmi (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. febrúar 1974.
Tekið eftir Katalog I , bls. 522 (nr. 995). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. GI skráði 3. október 2001. Már Jónsson skráði seðla Árna Magnússonar í febrúar 2000.
Viðgert og bundið í nóvember 1973. Eldra band fylgir.