Hér er varðveitt stórt safn konungsbréfa (hluti þeirra á dönsku), dómar, vitnisburðir o.þ.h. (samtals 160 efnisþættir), frá 16. og 17. öld. Að lokum er hér reikningsyfirlit yfir kostnað og tekjur Skálholtsdómkirkju og skólans í meðalári. Bl. 22-24, 129, 147v-152, 175-177 auð.
Gömul blaðsíðumerking, en ónákvæm, þar sem tíðum hefur m.a. verið hlaupið yfir síður.
Ein hönd.
Brúnt þrykkt leðurband með tveimur spennum.
Skrifað af Hákoni Ormssyni landþingsskrifara og tímasett til 1643 í Katalog I , bls. 519.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. nóvember 1973.