„Copia | Aff Bieffum og skilrykium | fyrer Jmſum Jỏrdum | Coperud | Effter Synum Originalum | sem finſt og Sieſt med syn|um Jnciglum og | Hanskrifftum | vnder | Samanleſed og Vppſkriffad | Anno 1687, 1688, 1689 etc.“
Á eftir titli á bl. 1r koma spakmæli á latínu. Hér er varðveitt stórt safn af skjölum og heimildarbréfum um jarðeignir, einkum frá 16. og 17. öld.
Titilbl. á 1r.
Afrit þessi voru gerð fyrir Árna Magnússon. Á bl. 96 eru nokkrar latneskar athugasemdir með annarri hendi. Á bl. 265r-266v eru smávægilegar athugasemdir Árna Magnússonar.
Ein hönd að mestu (bl. 96-104 og 265-266 með öðrum höndum).
Bl. 96-104 og 265-266 innskotsblöð.
Band frá því í nóvember 1973.
Fastur seðill (164 mm x 109 mm) með hendi Árna Magnússonar þar sem hann leggur mat á gildi handritsins og not sín af því: „Bréfabók síra Skúla Þorlákssonar rituð, mestan hlut með hans eigin hendi, innihelldur copiur af allra handa gjörningsbréfum, gömlum og nýjum. Þau gömlu bréfin, sem ég hefi kunnað að samanbera við originalana, eru í skárra lagi orðrétt rituð, en stafrétt engan origen. (α) + Framan við documenten merkir, að ég hefi þau sem svo eru noteruð. α) Ég hefi eigi allfáa originala, sem þar inni afcopierað standa. Eru það mest þar er ég fengið hefi af síra Skúla.“
Handritið er að stærstum hluta eiginhandarrit séra Skúla Þorlákssonar og tímasett til c1687-1690 (1r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 29. janúar 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1973. Eldra band fylgdi.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.