Afrit af sendum og mótteknum bréfum frá 1600-1611.
Fyrstu og þó einkum síðustu blöð handrits eru mjög illa farin.
Ýmsar hendur.
Nótur á bókfelli í eldra bandi.
Band frá því í september 1961.
Eldra band er bókfell úr kirkjulegu latnesku handriti með nótum, en einungis rytjur eru varðveittar af því. Þegar arkirnar voru festar við kjöl hafa bókfellsstrimlar verið notaðir til styrkingar, en á þeim virðast brot úr íslensku handriti af Jónsbók.
Nokkrir seðlar.
Handritið er að litlum hluta eiginhandarrit Gísla Árnasonar (sjá t.d. bl. 58r). Það er tímasett til c1600-1611, en til um 1600 í Katalog I , bls. 513.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. nóvember 1973.