Einn seðill (141 mm x 98 mm) með hendi Árna Magnússonar, þar sem hann telur Björn Jónsson á Skarðsá vera höfund, sem fyrirspurn hjá Jóni Einarssyni hafi styrkt: „Jóni Einarssyni skrifað til 1699 hver author þessa sé, mér þykir það líkt Birni á Skarðsá. 1700 skrifar Jón Einarsson að author þessa tractatus meinist að vera Björn á Skarðsá.“ Síðari hönd bætir við: „Er mest allt orðrétt í Crymogæa.“
Handritið er tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 493.
Árni Magnússon fékk handritið frá Jóni Einarssyni (sjá bl. 1r, efri spássíu).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. september 1973.>