Skráningarfærsla handrits

AM 218 c I-III 4to

Lagaritgerðir og dómar ; Ísland, 1650-1704

Athugasemd
Samsett úr þremur handritum.

Innihald

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
i + 6 + i blað.
Tölusetning blaða

Á seinni tímum hafa öll handritin verið blaðmerkt í einu með fjólubláum lit 1-6.

Band

Band frá ágúst 1973 (212 mm x 195 mm x 6 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd fínofnum líndúki. Saumað á móttök. Tvö saurblöð úr bandi. Handritið liggur í öskju.

Eldra band frá 1772-1780 liggur í öskju með handritinu. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Spjaldblöð eru blöð úr prentaðri bók.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (164 mm x 104 mm) fremst með ókunnri hendi og athugasemd Árna Magnússonar, þar sem Árni ýjar að öðru eintaki sem hann virðist eiga af ritgerð Þorsteins Magnússonar: Þingfararbálk Þorsteins Magnússonar, heilan, á Sigurður á Ferju með sinni eigin hendi. Á bók í 4to copie þar af hefur monsieur Brynjólfur Þórðarson. Á bók Sigurðar er þar fyrir utan Björns á Skarðsá og Bárðar Gíslasonar. Habeo bók Sigurðar.
  • Fastur seðill (196 mm x 160 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar, með upplýsingum um feril. Hér er einnig athugasemd með annarri hendi: Þetta hefi ég fengið frá Leirárgörðum. M[agister] Brynjólfur um ýmislegan meðgöngutíma kvenna Björns á Skarðsá og Halldórs Þorbergssonar. Nokkrir laga discursar yfir ýmsar greinar lögbókar. Seðillinn er í reynd tvinn og er fremra blaðið autt.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn um forvörslu.

Uppruni og ferill

Ferill

Árni Magnússon fékk AM 218 a-c 4to úr Leirárgörðum (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. maí 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • MJG fór yfir skráningu með gögnum frá BS, 14. febrúar 2024
  • GI skráði 19. febrúar 2003.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 2. desember 1886 (Katalog (I) 1889:488 (nr. 923)).

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í ágúst 1973.

Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Hluti I ~ AM 218 c I 4to

1 (1r-1v)
Um valdsmenn
Höfundur

Þorsteinn Magnússon

Titill í handriti

Valldz madur þijng farar balki 1 cap

Upphaf

Huad sie þad er huor tignar madur ...

Niðurlag

... 1377 vt koma Eyrykz Gudmundssonar | med hirdstiőrn

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Skjaldarmerki Amsterdams.
Blaðfjöldi
1 blað (202 mm x 164 mm).
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðmerking með fjólubláum lit 1.

Kveraskipan

Eitt stakt blað, sem hefur verið fest við bl. 4 í AM 218 c 4to til að mynda tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 185 mm x 145 mm.
  • Línufjöldi er 29 og 14.

Ástand

  • Frambrún blaðs er óskorið.
  • Blaðið er smá óhreint, sérstaklega ofarlega á rectó-hlið þess.
  • Blaðið hefur fyrst verið brotið í tvennt (lárétt) og síðan lóðrétt (tvisvar).

Skrifarar og skrift

Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Skreytingar

Fyrirsögn er skrifuð í kansellískrift.

Á bl. 1r eru tveir litlir bókahnútar sem líkjast öldum.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Efst á bl. 1r er spássíugrein um feril.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á Íslandi, ca. 1650-1704, en 1704 fékk Árni Magnússon handritið í hendur (1r). Kålund tímasetur handritið til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:488).

Ferill

Árni Magnússon fékk þetta blað frá Halldóri Þorbergssyni árið 1704 (1r).

Hluti II ~ AM 218 c II 4to

Tungumál textans
íslenska
1 (2r-3v)
Um kvennagiftingar
Upphaf

Med þui ad eg hefi so efftir tekid ...

Niðurlag

... sem gud uill hann sie erfingi ad

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír, vatnsmerki er sennilega mótmerki (1-2 stafir sýnilegir).

Blaðfjöldi
2 blöð (202 mm x 170 mm).
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðmerking með fjólubláum lit 2-3.

Kveraskipan

Tvinn (2 blöð).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 185 mm x 155 mm.
  • Línufjöldi er 27-28.
  • Síðustu orð á síðu hanga undir leturfleti á 2r.

Ástand

  • Blöð eru dökk og óhrein.
  • Jaðar er óskorinn og dekkri en blaðið sjálft.
  • Blaðið hefur verið brotið í fernt. Brotalínur mynda samhverfan kross sem er að hluta til sýnilegur.

Skrifarar og skrift

Eiginhandrit Halldórs Þorbergssonar, fljótaskrift undir áhrifum blendingsskriftar.

Skreytingar

Fyrsti stafur er hærri, en ekkert skreyttur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Tölustafir á spássíum, e.t.v. með hendi skrifara.
  • Heimildatilvísun á 1v, e.t.v með hendi skrifara.
  • Ofan við textann, á efri spássíu á 1r, skrifar Árni Magnússon nafn höfundarins: Author est Haldorus Thorbergi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi.

E.t.v. eiginhandarrit Halldórs Þorbergssonar (sbr. munnlegar upplýsingar frá Guðrúnu Ásu Grímsdóttur) og skrifað c1650-1700. Kålund tímasetur handritið til 17. aldar ( Katalog (I) 1889, bls. 488). Hönd Halldórs má m.a. sjá í AM 408 h II 4to ( Annálar 1400-1800 (I) :279).

Ferill

Kålund telur að Árni Magnússon hafi fengið handritið sem hluta af stærra safni frá Leirárgörðum Katalog I, 488. En, seðill Árna kann frekar að eiga bara við AM 218 c 4to III þar sem sá hlutur og hlutur II eru með annan seðil með hendi Árna og þar eru engin augljós tengsl á milli Halldórs Þorbergssonar og Leirárgarða. Það er ekki vitað hvenær og hvernig Árni fékk þessi blöð, en þau kunnu hafa komið með fyrsta blaðinu frá höfundi (sjá fyrir ofan).

Hluti III ~ AM 218 c III 4to

1 (4r)
Dómur um ómaga, er á fénu var, áður en arfaskiptin gjörðust eða gjöf á peningum fram fór
Upphaf

... dottur Þőru, þar til að Jőn ecktamadur Þőru ...

Niðurlag

... sijna penga fr sier gieffed

Athugasemd

Frá 1641.

Einungis niðurlagið.

Strikað yfir texta, bl. 4r.

Efnisorð
2 (4r)
Dómur um mál Ívars Ólafssonar og Bjarna Jónssonar
Upphaf

Anno 1642 þann 30 julij a xaringi ...

Niðurlag

... edur þad fyri hónumm ad taka. | Sómulejdis

Athugasemd

Frá 30. júní 1642.

Vantar aftan af, svo virðist sem skrifari hafi hætt í miðju kafi.

Strikað yfir texta.

Tungumál textans
íslenska
Efnisorð
3 (4v-6r)
Erfðarétturinn í 12 erfðum
Athugasemd

Skýringarmyndir.

Efnisorð
4 (6r-v)
Um Herjólfsréttarbót
Titill í handriti

Vmm Herjolfs R.B.

Upphaf

Anno 1582 s eg þa skrifft sem þier sendud mier ...

Niðurlag

... konungs bon og samþikt hvad all | drei verdur

Athugasemd

Texti sums staðar máður.

Texti byrjar undir teikningu á miðju bl. 6r.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki með dárahöfuð með fimm bjöllum og keðju (bl. 4, 6 ).

Blaðfjöldi
3 blöð (196-200 mm x 167-170 mm).
Tölusetning blaða

  • Gömul blaðmerking 64-66. Á 5r er talan 64 í stað 65 og hefur sá sem síðar blaðmerkti handritið leiðrétt þetta og skrifað 5 ofan við 64.
  • Síðari tíma blaðmerking með fjólubláum lit 4-6.

Kveraskipan

Blað 4 hangir saman við blaðið í AM 218 c I 4to, en svo hefur ekki verið frá upphafi. Blöð 5 og 6 eru tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Mælingar voru einungis gerðar á bl. 4r og 6v, þar eð skýringarmyndir eru á öðrum blöðum:
  • Leturflötur er 155-190 mm x 130-150 mm.
  • Línufjöldi er 29 og 45.
  • Síðustu orð á síðu hanga undir leturfleti á 4r og 6r.

Ástand

  • Blöð eru dökk og blettótt, sérstaklega bl. 6v, og texti er máður.
  • Jaðar er óskorinn.
  • Viðgerðir við kjöl.
  • Hringir teikninga hafa verið gerðir með sirkli og skilið eftir gat í miðju.

Skrifarar og skrift

Ein hönd, óþekktur skrifari, kansellískrift.

Skreytingar

Fyrirsagnir skrifaðar með stærra letri og eru aðeins skreyttar.

Flúr undir síðustu orðum sem hanga undir leturfleti.

Skýringarmyndir á 4v-6r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Strikað yfir texta á 4r.

Uppruni og ferill

Uppruni

Sennilega skrifað á árunum 1642-1700, seinni dómurinn á 4r er frá 1642. Kålund tímasetur handritið til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:488).

Ferill

Ef seðill Árna Magnússonar á við þennan hluta handritsins, þá fékk hann blöðin frá Leirárgörðum í Borgarfjarðarsýslu. Upprunalegt handrit hefur verið tekið í sundur.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Annálar 1400-1800
Ritstjóri / Útgefandi: Hannes Þorsteinsson
Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM 218 c I-III 4to
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn