Manuscript Detail
AM 218 c I-III 4to
There are currently no images available for this manuscript.
Lagaritgerðir og dómar; Iceland, 1650-1700

Special character shown similar to its original form.
Physical Description
Á seinni tímum hafa öll handritin verið blaðmerkt í einu með fjólubláum lit 1-6.
Band frá ágúst 1973 (212 mm x 195 mm x 6 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd fínofnum líndúki. Saumað á móttök. Tvö saurblöð úr bandi. Handritið liggur í öskju.
Eldra band frá 1772-1780 liggur í öskju með handritinu. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Spjaldblöð eru blöð úr prentaðri bók.
- Fastur seðill (164 mm x 104 mm) fremst með ókunnri hendi og athugasemd Árna Magnússonar, þar sem Árni ýjar að öðru eintaki sem hann virðist eiga af ritgerð Þorsteins Magnússonar: “Þingfararbálk Þorsteins Magnússonar, heilan, á Sigurður á Ferju með sinni eigin hendi. Á bók í 4to copie þar af hefur monsieur Brynjólfur Þórðarson. Á bók Sigurðar er þar fyrir utan Björns á Skarðsá og Bárðar Gíslasonar. Habeo bók Sigurðar.”
- Fastur seðill (196 mm x 160 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar, með upplýsingum um feril. Hér er einnig athugasemd með annarri hendi: “Þetta hefi ég fengið frá Leirárgörðum. M[agister] Brynjólfur um ýmislegan meðgöngutíma kvenna Björns á Skarðsá og Halldórs Þorbergssonar. Nokkrir laga discursar yfir ýmsar greinar lögbókar.” Seðillinn er í reynd tvinn og er fremra blaðið autt.
- Laus seðill frá Kaupmannahöfn um forvörslu.
History
Árni Magnússon fékk AM 218 a-c 4to úr Leirárgörðum (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. maí 1974.
Additional
- GI skráði 19. febrúar 2003.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar 2. desember 1886 (Katalog (I) 1889:488 (nr. 923)).
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í ágúst 1973.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Contents
Part I ~ AM 218 c I 4to
Physical Description
Síðari tíma blaðmerking með fjólubláum lit 1 (1r).
- Leturflötur er .
- Línufjöldi er 29 og 14.
Efst á bl. 1r er spássíugrein um feril.
History
Skrifað c1650-1704, en 1704 fékk Árni Magnússon handritið í hendur (1r). Kålund tímasetur handritið til 17. aldar (Katalog (I) 1889:488).
Árni Magnússon fékk þetta blað frá Halldóri Þorbergssyni árið 1704 (1r).
Part II ~ AM 218 c II 4to
Physical Description
Síðari tíma blaðmerking með fjólubláum lit 2-3 (1r-2r).
Tvinn (2 blöð).
- Leturflötur er .
- Línufjöldi er 27-28.
- Síðustu orð á síðu hanga undir leturfleti á 1r.
- Tölustafir á spássíum, e.t.v. með hendi skrifara.
- Heimildatilvísun á 1v, e.t.v með hendi skrifara.
- Ofan við textann, á efri spássíu á 1r, skrifar Árni Magnússon nafn höfundarins.
History
E.t.v. eiginhandarrit Halldórs Þorbergssonar (sbr. munnlegar upplýsingar frá Guðrúnu Ásu Grímsdóttur) og skrifað c1650-1700. Kålund tímasetur handritið til 17. aldar (Katalog (I) 1889:488). Hönd Halldórs má m.a. sjá í AM 408 h II 4to (Annálar 1400-1800 (I):279).
Part III ~ AM 218 c III 4to
Dómur um ómaga, er á fénu var, áður en arfaskiptin gjörðust eða gjöf á peningum fram fór
“dottur Þőru, þar til að Jőn ecktamadur Þőru”
“sijna penga fra sier gieffed”
Frá 1641.
Einungis niðurlagið.
Strikað yfir texta.
Dómur um mál Ívars Ólafssonar og Bjarna Jónssonar
“Anno 1642 þann 30 julij a xararþingi”
“edur þad fyri hónumm ad taka. | Sómulejdis”
Frá 30. júní 1642.
Vantar aftan af, svo virðist sem skrifari hafi hætt í miðju kafi.
Strikað yfir texta.
Erfðarétturinn í 12 erfðum Erfðagangurinn í 12 erfðum
Skýringarmyndir.
Physical Description
- Gömul blaðmerking 64-66 (1r-3r). Á 2r er talan 64 í stað 65 og hefur sá sem síðar blaðmerkti handritið leiðrétt þetta og skrifað 5 ofan við 64.
- Síðari tíma blaðmerking með fjólubláum lit 4-6 (1r-3r).
Blað 1 hangir saman við blaðið í AM 218 c I 4to, en svo hefur ekki verið frá upphafi. Blöð 2 og 3 eru tvinn.
- Mælingar voru einungis gerðar á bl. 1r og 3v, þar eð skýringarmyndir eru á öðrum blöðum:
- Leturflötur er .
- Línufjöldi er 29 og 45.
- Síðustu orð á síðu hanga undir leturfleti á 3v.
- Griporð á 1r og 3r.
Skýringarmyndir á 1v-3r.
- Strikað yfir texta á 1r.
- Texti sums staðar máður og ögn blettóttur á 3v.
History
Sennilega skrifað á árunum 1642-1700, seinni dómurinn á 1r er frá 1642. Kålund tímasetur handritið til 17. aldar (Katalog (I) 1889:488).
Bibliography
Author | Title | Editor | Scope |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Annálar 1400-1800 (I) | |||