„Um viðvörun til sýslumanna, Samtök herra biskupsins Magistur Brynjólfs Sveinssonar Anno 1651. Um ýmislegan kvenna meðgöngutíma.“
Pappír með vatnsmerkjum.
Blaðmerking með svörtu bleki 1-4, í efra horni, síðari tíma viðbót.
Eitt kver:
Með hendi Þórðar Þórðarsonar, íslenska er skrifuð með fljótaskrift, latína með húmanískri skrift.
Upphafstafir eru aðeins hærri en stafir meginmáls.
Band frá árunum 1771-1780. Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrfað framan á kápu. Límmiði með safnmarki er á kili.
Einn seðill (165 mm x 102 mm) með hendi Árna Magnússonar. Á seðlinum fjallar Árni Magnússon um forritið, sem var afrit af Alþingisbók: „Þetta scriptum mag[isters] Brynjólfs er ritað eftir hendi Páls Gíslasonar landskrifara, og stóð það mitt innan í Alþingisbók anno 1651 hverja Páll Gíslason með öðrum þingbókum af copierað hafði. Ég hefi annars aldrei séð það í nokkurri original þingbók, og hefi ég þó nokkur exemplaria haft af þingbók þess árs, undir hendi Þórðar Henrikssonar, sem þá var landskrifari.“
Skrifað á Íslandi, og er tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog I , bls. 487.
Kålund telur að Árni Magnússon hafi fengið AM 218 a-c 4to frá Leirárgörðum.
En hins vegar er það líklegra að Árni hafi fengið skrifara sinn, Þórð Þórðarson til að skrifa upp handritið, þegar Árni dvaldi á Íslandi árin 1702-1712.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. desember 1973.