Band frá september 1970 (214 mm x 185 mm x 9 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd fínofnum líndúki. Saumað á móttök. Handritið liggur í öskju með öðrum handritum í AM 216 a-f 4to.
Eldra band frá 1772-1780 liggur í öskju með handritinu. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Spjaldblöð eru blöð úr prentaðri bók.
Árni Magnússon fékk handritið að láni hjá Magnúsi Arasyni árið 1705 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 1. nóvember 1973.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í september 1970.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.
Bréfið er dagsett 13. maí.
Fjallar um erfðir og fátækraframfærslu. Einnig minnist Björn á skýringar sínar við Höfuðlausn Egils Skallagrímssonar.
Utanáskriftin er á 6v.
Þrjú stök tvinn, 6 blöð
Á bl. 5 og 6 eru göt sem gert hefur verið við, en á bl. 6 er texti óverulega skertur af þessum sökum.
Ein hönd.
Björn Jónsson á Skarðsá.
Skrifað af Birni Jónssyni á Skarðsá c1634, en Kålund tímasetur handritið til fyrri hluta 17. aldar ( Katalog (I) 1889:485 ). Í bréfinu fjallar Björn um Höfuðlausnarskýringar sínar (5v) en sennilegt þykir að hann hafi lokið við þær árið 1634 ( Einar G. Pétursson 1998 :35).
Bréfið er dagsett 25. febrúar.
Fjallar m.a. um fréttir og atvik úr samtímanum. Getur einnig um uppskrift sína á Íslendinga sögu.
Utanáskriftin er á bl. 3v.
Tvinn (2 blöð) og stakt bl.
Ein hönd.
Björn Jónsson á Skarðsá.
Skrifað af Birni Jónssyni á Skarðsá c1635 ( Kålund 1906-1911:XXXVII , sjá einnig Þorleifur Hauksson 1972:xviii ).
Texti lítillega skertur á bl. 1.
Bréfið er dagsett 20. febrúar 1638.
Fjallar um sjálfan sig og lagaskýringar sínar. Ræðir og um handrit af Speculum regale.
Utanáskriftin er á bl. 2v.
Tvinn (2 blöð).
Skorið hefur verið neðan af handriti á bl. 1, þannig að texti er ögn skertur.
Ein hönd.
Björn Jónsson á Skarðsá.
Athugasemd við texta með annarri hendi á bl. 2v.
Skrifað af Birni Jónssyni á Skarðsá 20. febrúar 1638 (2r).