„Hier Eptter Fylger Ein Lijtel Vtþydijngar Meinijng þeirrar Fyrſtu Er|fdar, vorrar Løg Bokar“
Um erfðatal Jónsbókar.
Ýmsar hendur.
Að hluta til eiginhandarrit höfundar, Þorsteins Magnússonar (bls. 33-48), en samkvæmt undirskrift hans og ársetningu (sem síðar er strikað yfir) skrifaði hann sinn hlut árið 1636 að Felli í Mýrdal. Í Katalog I , bls. 478, er handritið hins vegar tímasett til 17. aldar.
Árni Magnússon fékk handritið frá Hannesi Scheving árið 1723, en þá var það hluti af stærri bók eða syrpu. Árni telur að syrpa þessi hafi fyrrum verið eign Guðmundar Illugasonar (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. september 1973.