Skráningarfærsla handrits

AM 212 4to

Um erfðir ; Ísland, 1636-1700

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-24v)
Um erfðir
Höfundur

Þorsteinn Magnússon sýslumaður

Upphaf

Hier Eptter Fylger Ein Lijtel Vtþydijngar Meinijng þeirrar Fyrſtu Er|fdar, vorrar Løg Bokar

Athugasemd

Um erfðatal Jónsbókar.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
24 blöð ().
Umbrot

Skrifarar og skrift

Ýmsar hendur.

Band

 

Fylgigögn

  • Fastur seðill (fremra saurblað) (202 mm x 157 mm) með hendi Árna Magnússonar: Þorsteins Magnússonar um erfðir. Úrskorið úr syrpu þeirri er ég fékk 1723 frá monsieur Hannesi Scheving, hver syrpa ég meina, að fyrrum hafi tilheyrt Guðmundi Illugasyni.
  • Efnisyfirlit Jóns Sigurðssonar liggur með hdr.

Uppruni og ferill

Uppruni

Að hluta til eiginhandarrit höfundar, Þorsteins Magnússonar (bls. 33-48), en samkvæmt undirskrift hans og ársetningu (sem síðar er strikað yfir) skrifaði hann sinn hlut árið 1636 að Felli í Mýrdal. Í  Katalog I , bls. 478, er handritið hins vegar tímasett til 17. aldar.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Hannesi Scheving árið 1723, en þá var það hluti af stærri bók eða syrpu. Árni telur að syrpa þessi hafi fyrrum verið eign Guðmundar Illugasonar (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. september 1973.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 478 (nr. 905). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. GI skráði 17. september 2001.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Um erfðir

Lýsigögn