Auk bréfa Sigurðar eru hér einnig skrif sem honum hafa borist frá öðrum og ýmsis skjöl. Bl. 33-34 auð.
Ýmsar hendur.
Undirskrift sumra bréfanna er með hendi Sigurðar Björnssonar lögmanns og vera kann að bl. 37-40 séu með hans hendi.
Saurblað: Hér er athugasemd um feril, en þar aftan við eru tvö latnesk orðtök (sjá feril).
Á fremra saurblaði stendur: „Sigurdus Biornonis 1694 poss. veritas et justum conservent me. // Evripides. Nemo sycophantæ morsum effigere potest, cum nihil tam circumspecte tamq. deliberate vel dici vel fieri - qveat qvod tutum sit a malevolorum cavillis.“
Tímasett til c1675-1700 í Katalog I , bls. 466.
Sigurður Björnsson lögmaður merkti sér bókina árið 1694 (sbr. saurblað).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. júlí 1973.