Að mestu skjöl um erfðadeilu að Vigfúsi Gíslasyni lögmanni látnum. Vigfús dó árið 1520.
Seinni tíma blaðsíðumerking þar sem pappírsblað frá Árna Magnússyni er einnig blaðsíðumerkt sem og seðill.
Mörg blöð eru götótt og mjög illa farin.
Ýmsar hendur.
Pappírsblað með hendi Árna Magnússonar, en á því er afritað brot af frásögn þar sem ættir Norðurlandabúa eru raktar til Trójumanna.
Band frá nóvember 1975.
Einn seðill (sem bls. 21-22 (145 mm x 100 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Mitt, gefið mér af monsieur Brynjólfi Þórðarsyni 1705.“
Blaðsíður 1-18, 23-57, 59-81 eru tímasettar til c1520-1538 (sjá ONPRegistre , bls. 449), en handritið er tímasett til 16. aldar í Katalog I , bls. 461.
Brynjólfur Þórðarson gaf Árna Magnússyni handritið árið 1705 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. febrúar 1976.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1975. Eldra band er í öskju með hdr.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.