Skráningarfærsla handrits

AM 191 4to

Bréf, dómar og skjöl áhrærandi Vigfús Gíslason lögmann ; Ísland, 1520-1538

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-39v)
Bréf, dómar og skjöl áhrærandi Vigfús Gíslason lögmann
Athugasemd

Að mestu skjöl um erfðadeilu að Vigfúsi Gíslasyni lögmanni látnum. Vigfús dó árið 1520.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
39 blöð og blaðstubbar ().
Tölusetning blaða

Seinni tíma blaðsíðumerking þar sem pappírsblað frá Árna Magnússyni er einnig blaðsíðumerkt sem og seðill.

Umbrot

  

Ástand

Mörg blöð eru götótt og mjög illa farin.

Skrifarar og skrift

Ýmsar hendur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Pappírsblað með hendi Árna Magnússonar, en á því er afritað brot af frásögn þar sem ættir Norðurlandabúa eru raktar til Trójumanna.

Band

Band frá nóvember 1975.  

Fylgigögn

Einn seðill (sem bls. 21-22 (145 mm x 100 mm) með hendi Árna Magnússonar: Mitt, gefið mér af monsieur Brynjólfi Þórðarsyni 1705.

Uppruni og ferill

Uppruni

Blaðsíður 1-18, 23-57, 59-81 eru tímasettar til c1520-1538 (sjá  ONPRegistre , bls. 449), en handritið er tímasett til 16. aldar í  Katalog I , bls. 461.

Ferill

Brynjólfur Þórðarson gaf Árna Magnússyni handritið árið 1705 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. febrúar 1976.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 463 (nr. 868). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 18. nóvember 1886. GI skráði 14. ágúst 2002.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1975. Eldra band er í öskju með hdr.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Lýsigögn
×

Lýsigögn