Aðeins skrifað í innri dálka vinstri síðna.
Brotið hefur verið upp á blöðin í bókinni.
Ein hönd.
Nótur á bókfelli í bandi.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli með latneskum texta og nótnaskrifi úr helgisiðahandriti.
Seðill með hendi Árna Magnússonar.
Með hendi Ásgeirs Jónssonar og tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 457, en Ásgeir var skrifari Þormóðs Torfasonar á árunum 1688-1704.
Árni Magnússon fékk handritið hjá Ingibjörgu Jónsdóttur í Ljárskógum.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. nóvember 1977.