„Ala skal barn hvert er borið verður …“
„… koma til biskups úrskurðar eður hans umboðsmanns.“
Óheill. Hér eru einnig varðveittir 1. og 2. kafli úr appendix útgáfunnar.
„Tíðaoffur presta …“
„… anno domini mmlxx quinto.“
Óheilt. Um innihaldið vísar Kålund í Norges gamle Love IV , en tilfærir viðbótarefni (sjá Katalog 1888:454).
Handritið er blaðsíðumerkt en aðeins rektósíður númeraðar, 1-73.
Ýmsar hendur. Skriftin er textaskrift undir áhrifum frá léttiskrift.
Nótur á bl. 37v (ein lína) með eftirfarandi texta: Laus sit semper deo; nostro Iesu Christo.
Band frá árunum 1772-1780 (230 mm x 163 mm x 24 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Titlar og safnmark skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Þrír seðlar með hendi Árna Magnússonar og einn með hendi skrifara hans:
Hluta af handritinu (aftan til) fékk Árni Magnússon frá Skálholti árið 1699, en það mun hafa legið þar í tíð Þórðar Þorlákssonar biskups. Fremsta hluta handritsins fékk Árni á tveimur stöðum á Íslandi árið 1702 (sjá nánar um þetta á seðlum og AM 435 a-b 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. janúar 1975.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í október 1957.