Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 169 4to

Jónsbók ; Ísland, 1300-1350

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r)
Skuldareikningur
Efnisorð
2 (1r)
Griðamál
Efnisorð
3 (1v-76r)
Jónsbók
Athugasemd

Engin raunveruleg bálkaskipting. Kristindómsbálkur líkast til stuttur - samsvarandi eyðunni á milli bl. 4 og 5. Engin Farmannalög. Textinn hefur verið fylltur með réttarbótinni frá 1294.

Bl. 1r og 25v upphaflega auð.

Efnisorð
4 (76v-78v)
Réttarbót Hákonar konungs 1314
Titill í handriti

Her hefr nymęlı

Upphaf

skylda vár ok ástsemd

Athugasemd

Vantar aftan af.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
78 blöð (215 mm x 152 mm).
Umbrot

Ástand

  • Víða eyður í handritinu.
  • Neðri spássía hefur víða verið skorin burt.
  • Bl. 1 rifið.

Skrifarar og skrift

Ýmsar hendur.

Skreytingar

Upphafsstafir í ýmsum litum.

Rauðritaðar fyrirsagnir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Víða spássíugreinar, nöfn og aðrar viðbætur.
  • Á bl. 25v er kvartað yfir því hve handritið er illlæsilegt.
  • Á bl. 25v er skrifað með 16. aldar hendi: Jon Jons son er ad læra þessa bok.
  • Á á bl. 38v er vísa með 17. aldar hendi.

Band

Band frá því í júní 1977. mm x mm x mm

Fylgigögn

  • seðill (131 mm x 111 mm) með hendi Árna Magnússonar: Jónsbók réttarbót Hákonar konungs.
  • seðill (142 mm x 91 mm): Hér sýnist muni vanta 1 blað og hefur þá á því eyða verið, og á þann máta 9 blöð í þessu fyrsta arki. Hefur svo aldrei í þessari bók verið fullkominn Kristinsdómsbálkur og eigi meira af honum en rúm hefur fengið á einu blaði.
  • Handritinu fylgir rækileg greinargerð Jóns Sigurðssonar, innfest á kápu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til fyrri hluta 14. aldar í  Katalog I , bls. 445. Sjá einnig tímasettningar í  ONPRegistre , bls. 447, en þar eru blöðin tímasett með eftirfarandi hætti: bl. 1r (l. 1-5) til c1340, bl. 1r (l. 6-18) til c1380, bl. 1v-25r, 76v-78v til c1300-1350 og bl. 26r-76r til c1330.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. desember 1981.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 445-446 (nr. 837). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. Haraldur Bernharðsson skráði 30. apríl 2001. Már Jónsson annaðist hlut Árna Magnússonar í febrúar 2000.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið á verkstæði Birgitte Dall í júní 1977. Eldra band fylgir í öskju með handritinu.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: , Jóns saga Hólabyskups ens helga
Ritstjóri / Útgefandi: Foote, Peter
Umfang: XIV
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Lýsigögn
×

Lýsigögn