Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 160 4to

Lög ; Ísland, 1540-1560

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1bisr-101r)
Jónsbók
Upphaf

Magnús með Guðs miskunn Noregs kóngur …

Niðurlag

… en virða þó til fullra aura. AMEN.

Efnisorð
2 (102r-124r)
Kristinréttur Árna biskups
Upphaf

Ala skal barn hvert er borið verður …

Niðurlag

… en allri illsku týni. Amen.

3 (124r-131v)
Kirkjuskipanir, lagaákvæði og samþykktir
Athugasemd

Að mestu varðandi kirkjuleg málefni; tíundargjöld og verðútreikningar eða verðmælar.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
ii + 133 + ii blöð, þar með talið bl. 1bis (157 +/- 2 mm x 116 +/- 2 mm). Bl. 1r og 132 eru upprunalega auð. Óregluleg í lögun eru: bl. 18-19, 54, 56, 64-65, 69, 73, 81, 96, 113, 130-131.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt síðar 1-132 + 1bis. Einnig er blaðsíðumerking efst á ytra horni margra blaða 1- 266.
  • Gömul blaðmerking með rómverskum tölum víða á neðri spássíum. Gæti verið með hendi skrifarans.

Kveraskipan

  • Kver I: bl. 1 (+1bis)-8, stakt bl. og 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: bl. 25-34, 5 tvinn.
  • Kver V: bl. 35-42, 4 tvinn.
  • Kver VI: bl. 43-50, 4 tvinn.
  • Kver VII: bl. 51-58, 4 tvinn.
  • Kver VIII: bl. 59-66, 4 tvinn.
  • Kver IX: bl. 67-74, 3 tvinn og tvö stök blöð (bl. 70 og 71).
  • Kver X: bl. 75-82, 4 tvinn.
  • Kver XI: bl. 83-90, 4 tvinn.
  • Kver XII: bl. 91-98, 4 tvinn.
  • Kver XIII: bl. 99-102, 2 tvinn.
  • Kver XIV: bl. 103-110, 4 tvinn.
  • Kver XV: bl. 111-118, 4 tvinn.
  • Kver XVI: bl. 119-126, 4 tvinn.
  • Kver XVII: bl. 127-132, 2 tvinn og tvö stök blöð (bl. 129 og 131).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 115-120 mm x 80-85 mm (á öftustu blöðunum fer breiddin upp í 95mm).
  • Línufjöldi er 23-24.
  • Upphafsstafir eru víðast teiknaðir út fyrir leturflöt. Sumar fyrirsagnir fara einnig út fyrir leturflöt.

Ástand

  • Göt sem orðið hafa við verkun skinnsins og skerða því ekki texta eru á bl. 32, 85, 111, 113, 115, 117 og 132.
  • Handritið er skítugt og nokkuð blettótt, einkum á kveraskilum, sem bendir til þess að handritið hafi verið óbundið um tíma.
  • Fyrirsagnir eru máðar og sums staðar illlæsilegar. Sumir upphafsstafir eru einnig nokkuð máðir.

Skrifarar og skrift

Bl. 1bisr-128r með hendi einhvers feðganna séra Ara Jónssonar á Stað í Súgandafirði og sona hans Jóns og Tómasar, líklega með hendi Jóns (sbr. Karl Ó. Ólafsson 2006 og Stefán Karlsson 1970:139), árléttiskrift.

Bl. 128v-131v með óþekktri hendi, árléttiskrift.

Skreytingar

Heilsíðumynd af Ólafi helga í hásæti, haldandi á öxi og valdaepli, með krýndan dreka undir fótum á bl. 1v (Sjá ljóspr. í Corpus Cod. Isl. Med. Aevi 7, mynd 78a).

Heilsíðumynd af biskupi í skrúða með bagal á bl. 101v.

Spássíumynd af hengdum manni á bl. 127v.

Smærri myndir má finna víða en þær standa oftast hjá upphafsstöfum (sjá til dæmis bl. 43v, 45v, 47v, 48r, 54r, 57v, 59r, 63v, 72v, 88v, 93v, 97v, 99v og 127v). Myndirnar eru ýmist af mönnum, mannshöfðum, drekum, fuglum og öðrum kynjaskepnum. Á neðri spássíu, ytra horni, bl. 88r og 107r eru teiknaðar hendur og bl. 129v kynjaskepna í lit.

Mikið skreyttir upphafsstafir í ýmsum litum á bl. 1bisr, 2v, 8r, 13r, 14v, 28r, 31v, 39r, 44v, 48v, 71r, 75v, 76v, 86r, 94v, 102r. Stundum eru mannsandlit teiknuð í belgi stafanna.

Upphafsstafir í ýmsum litum, einkum svörtum, rauðum eða grænum.

Rauðritaðar kaflafyrirsagnir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Spássíukrot er mestanpart réttarbætur og ýmiss konar viðbætur við aðaltextann (Karl Ó. Ólafsson 2006).

  • Aðrar spássíugreinar nefna gjarnan almættið, t.d. efst á bl. 1bisr: Guð minn komi til mín, 17r: miskunn Guðs með allri mildi, enn fremur á bl. 17v, 22r, 28r, 48r, 58v, 69r, 100r, 117v, 128v.
  • Nöfn koma fyrir á bl. 68v (Ólafur á mig segir bókin og er vel kominn að réttum erfðum), bl. 120r (Þórdís), 127v (Ól.), 130r (Ólafur), 132r (Þorgautur).

Band

Band frá 18. öld (168 mm x 123 mm x 50 mm). Pappaspjöld klædd bókfelli, leðurþvengir sjást á mótum kjalar og spjalda, kver saumuð með hamptaumum. Spjaldblöð og saurblöð eru nýlegri. Handritið liggur í öskju.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (154 mm x 101 mm) á milli saurblaða fremst með hendi Árna Magnússonar. Á seðlinum er efnisyfirlit og upplýsingar um feril (Jónsbók. Kristinréttur yngri. Nokkur Statuta Ecclesiastica. Um tíundarmál og matgjafir. Bókina fékk eg af seignr. Petre Wielandt, en hann af Bjarna í Arnarbæli. Codex non admodum vetustus), hvort tveggja á versóhlið en rektóhlið er auð.
  • Lýsing Jóns Sigurðssonar á handritinu fylgir.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1550 (sjá  ONPRegistre , bls. 446), en til síðari helmings 15. aldar í  Katalog I , bls. 441.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið hjá Peter Wielandt, en hann hafði fengið það hjá Bjarna Bjarnasyni (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. maí 1982.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P529.-30. desember 2009.
  • GI færði inn grunnupplýsingar 20. júní 2002.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 28. október 1886 (sjá Katalog I 1889:441 (nr. 828) .

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen 2. maí 1973.

Notaskrá

Titill: , Úlfhams saga
Ritstjóri / Útgefandi: Aðalheiður Guðmundsdóttir
Umfang: 53
Höfundur: Magerøy, Ellen Marie
Titill: , Islandsk hornskurd. Drikkehorn fra før "brennevinstiden"
Umfang: Supplementum 7
Höfundur: Elsa E. Guðjónsson
Titill: Gripla, Skyldleiki erlendra prentmynda við nokkrar íslenskar helgimyndir
Umfang: 3
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Höfundur: Guðbjörg Kristjánsdóttir
Titill: Lýsingar í íslenskum handritum, Kirkja og kirkjuskrúð
Umfang: s. 93-98
Höfundur: Guðbjörg Kristjánsdóttir
Titill: Lýsingar í íslenskum handritum á 15. öld, Gripla
Umfang: 27
Höfundur: Halldór Hermannsson
Titill: , Icelandic illuminated manuscripts of the middle ages
Umfang: 7
Höfundur: Halldór Hermannsson
Titill: Illuminated manuscripts of the Jónsbók, Islandica
Umfang: 28
Höfundur: Fett, Harry
Titill: Bergens Museums Aarbog, Miniatyrer fra islandske haandskrifter
Umfang: 7
Höfundur: Fett, Harry
Titill: Saga book, Miniatures from Icelandic manuscripts
Umfang: 7
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Ritun Reykjafjarðarbókar. Excursus, bókagerð bænda,
Umfang: s. 120-140
Höfundur: Þórdís Edda Jóhannesdóttir
Titill: Opuscula XVII, Marginalia in AM 510 4to
Umfang: s. 209-222
Lýsigögn
×

Lýsigögn