„Magnús með Guðs miskunn Noregs kóngur …“
„… en virða þó til fullra aura. AMEN.“
„Ala skal barn hvert er borið verður …“
„… en allri illsku týni. Amen.“
Að mestu varðandi kirkjuleg málefni; tíundargjöld og verðútreikningar eða verðmælar.
Bl. 1bisr-128r með hendi einhvers feðganna séra Ara Jónssonar á Stað í Súgandafirði og sona hans Jóns og Tómasar, líklega með hendi Jóns (sbr. Karl Ó. Ólafsson 2006 og Stefán Karlsson 1970:139), árléttiskrift.
Bl. 128v-131v með óþekktri hendi, árléttiskrift.
Heilsíðumynd af Ólafi helga í hásæti, haldandi á öxi og valdaepli, með krýndan dreka undir fótum á bl. 1v (Sjá ljóspr. í Corpus Cod. Isl. Med. Aevi 7, mynd 78a).
Heilsíðumynd af biskupi í skrúða með bagal á bl. 101v.
Spássíumynd af hengdum manni á bl. 127v.
Smærri myndir má finna víða en þær standa oftast hjá upphafsstöfum (sjá til dæmis bl. 43v, 45v, 47v, 48r, 54r, 57v, 59r, 63v, 72v, 88v, 93v, 97v, 99v og 127v). Myndirnar eru ýmist af mönnum, mannshöfðum, drekum, fuglum og öðrum kynjaskepnum. Á neðri spássíu, ytra horni, bl. 88r og 107r eru teiknaðar hendur og bl. 129v kynjaskepna í lit.
Mikið skreyttir upphafsstafir í ýmsum litum á bl. 1bisr, 2v, 8r, 13r, 14v, 28r, 31v, 39r, 44v, 48v, 71r, 75v, 76v, 86r, 94v, 102r. Stundum eru mannsandlit teiknuð í belgi stafanna.
Upphafsstafir í ýmsum litum, einkum svörtum, rauðum eða grænum.
Rauðritaðar kaflafyrirsagnir.
Spássíukrot er mestanpart réttarbætur og ýmiss konar viðbætur við aðaltextann (Karl Ó. Ólafsson 2006).
Band frá 18. öld (168 mm x 123 mm x 50 mm). Pappaspjöld klædd bókfelli, leðurþvengir sjást á mótum kjalar og spjalda, kver saumuð með hamptaumum. Spjaldblöð og saurblöð eru nýlegri. Handritið liggur í öskju.
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1550 (sjá ONPRegistre , bls. 446), en til síðari helmings 15. aldar í Katalog I , bls. 441.
Árni Magnússon fékk handritið hjá Peter Wielandt, en hann hafði fengið það hjá Bjarna Bjarnasyni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. maí 1982.