Óheilt. Aftan við eru nokkrar minni lagagreinar. Bl. 1r upphaflega autt.
Frá 13.-14. öld. Meðal efnis: Skipan Vilhjálms kardinála og grein um mál sem ekki er unnt að skjóta til æðri dómstóls.
Vantar eitt blað á eftir bl. 3 og 45 (sbr. athugasemd Árna Magnússonar).
Ein hönd (bl. 60v-63v og bl. 63v (neðst) með öðrum höndum).
Upphafsstafir í ýmsum litum, sumir mjög skreyttir og með kynjaskepnum.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Bl. 60v: Spássíumynd af tveimur dýrum.
Lýsing Jóns Sigurðssonar liggur með í öskju.
Tímasett til c1400 í Katalog I , bls. 439 (sjá einnig ONPRegistre , bls. 446).
Árni Magnússon fékk handritið hjá Brynjólfi Þórðarsyni. Áður átti það Gísli Magnússon (sbr. bl. 1r og AM 435 a 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. desember 1979.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í september 1976. Eldra band af AM 158 a og b 4to fylgir í öskju með báðum handritunum.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.