Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 157 a 4to

Stóridómur ; Ísland, 1460

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-2r)
Stóridómur
Athugasemd

Á bl. 2v er latneskt les frá 13. öld.

Efnisorð
2 (3r-80v)
Jónsbók
Athugasemd

Síðari tíma viðbætur á spássíum.

Efnisorð
3 (80r-85v)
Réttarbætur
Athugasemd

Þrjár elstu hafa að jafnaði fylgt lögbókinni.

Efnisorð
4 (85v-86v)
Lagaformálar
Athugasemd

Vantar aftan af.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
86 blöð ().
Umbrot

Tvídálka.  

Ástand

  • Blöðin eru illa farin af raka og sliti.
  • Bl. 1 og 2 mjög fúin og sködduð að neðan, einkum bl. 2.

Skrifarar og skrift

Ein hönd (bl. 1r, 2r, 2v og 85v-86v með öðrum höndum (fjórum)).

Skreytingar

Bl. 1v: Mynd af Ólafi helga í hásæti, haldandi á öxi og valdaepli, með dreka undir fótum.

Bl. 37r, 62r, 68v, 75r: Sögustafir.

Bl. 8v, 24v, 57v: Mikið skreyttir upphafsstafir í ýsmum litum.

Upphafsstafir í ýmsum litum.

Rauðritaðar fyrirsagnir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Bl. 2 er síðari tíma viðbót til að skrifa lokin á Stóradómi, en það hefur verið gert á 16. öld. Á bl. 2v er upprunalegur texti, latneskt les, frá 13. öld.
  • Víða spássíugreinar.

Band

Band frá nóvember 1974.  

Fylgigögn
Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar

  • Seðill 1 (167 mm x 106 mm): Jón Ólafsson í Vík, á Seltjarnarnesi, átti gamla lögbók í dálkum í 4to. Relatio Hildibrands. NB. það er sú er Nikulás í Vogum léði mér og seldi síðan.
  • Seðill 2 (164 mm x 104 mm): 1710 þann 23. maí fékk ég Sigmundi Haukssyni vinnumanni Nikulásar í Vogum 1/2 rixdals specie til að færa Nikulási fyrir þessa lögbók, því hann sagði Nikulás hefði sagt hann vildi selja hana. En léti mig ráða verðinu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til c1460 (sjá  ONPRegistre , bls. 446), en til 15. aldar í  Katalog I , bls. 438.

Ferill

Árni Magnússon keypti handritið árið 1710 af Nikulási Jónssyni í Vogum (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. nóvember 1981.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 438 (nr. 823). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 1886. GI skráði 18. júní 2002.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1974. Eldra band fylgir.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Halldór Hermannsson
Titill: Illuminated manuscripts of the Jónsbók, Islandica
Umfang: 28
Titill: Et brudstykke af Kongespejlet: Med bemærkninger om indholdet af AM 668,4°,
Ritstjóri / Útgefandi: Bekker-Nielsen, Hans
Umfang: s. 105-112
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Árni Magnússon : ævisaga
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Lýsigögn
×

Lýsigögn