Bl. 1r upprunalega autt.
Hér eru varðveittar tvær réttarbætur. Aftan við á bl. 80v eru nokkrir lagaformálar.
Á efri spássíu á bl. 81r: a gula þingſ bok. Bl. 96 upprunalega autt.
Litskreytt heilsíðumynd af Ólafi konungi helga í hásæti með öxi og bók (1v).
Upphafsstafir í ýmsum litum.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Band frá maí 1973.
Innan úr eldra bandi eru varðveitt tvö bréf til Kolbeins Einarssonar frá Tungu í Fáskrúðsfirði. Annað er dagsett 1689.
Tímasett til c1550-1560, en til 16. aldar í Katalog I , bls. 419.
Kolbeinn Einarsson frá Tungu í Fáskrúðsfirði átti eitt sinn bókina (sbr. sendibréf úr bandi). Á bl. 1v kemur og fram að Jón Sturluson (17. öld) erfði bókina.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. október 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í maí. Eldra band og tvö bréf úr bandi fylgdu með í öskju.