„[Hinn] nyi Chistinett[ur]“
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Lítið skjaldarmerki // Ekkert mótmerki ( 1 , 4-5 , 7-8 , 11-12 , 14 ).
Handritið er skemmt og mjög fúið.
Ein hönd.
Band frá 1976.
Umslag sem Árni Magnússon hefur skrifað á: „Kristinréttur. Úttekinn úr bók er ég fékk af séra Katli í Ásum í Skaftártungu, og ég kalla Kópíubók með hendi séra Jóns Erlendssonar í Villingaholti.“
Skrifað af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 288, en virkt skriftartímabili Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók sem var öll með hendi Jóns Erlendssonar og Árni Magnússon kallar Copiubok (sbr. seðil).
Bókina sem Árni Magnússon tók handritið úr fékk hann frá sr. Katli Halldórssyni í Ásum í Skaftártungu.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. mars 1977.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band fylgir.