Manuscript Detail
AM 343 fol.
View ImagesJónsbók; Iceland, 1330-1340
Contents
Jónsbók
“Magnús með Guðs miskunn …”
“… en virði þó til fullra aura.”
Physical Description
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-90. Aftasta blaðið er ómerkt.
Að mestu með einni hendi óþekkts skrifara, textaskrift.
Litmyndir víða, einkum í upphafsstöfum, til dæmis á bl. 1v, 2v, 14v, 24r, 84r.
Upphafsstafir í ýmsum litum, einkum rauðum og grænum, margir mikið skreyttir, t.d. á bl. 6r, 33r, 37v, 63v, 68v 77v, 81r.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Rauðritaðir síðutitlar.
Teikning af dýri á bl. 1r og af dýrshaus á bl. 89r, líklega hvort tveggja síðari tíma viðbót.
- Bl. 90 er innskotsblað frá 17. öld.
- Griðasetning með hendi frá um 1400 hægra megin og ofan til á bl. 1r, sem upprunalega var autt.
- Athugagreinar tveggja eigenda handritsins á bl. 1r; Magnúsar Magnússonar frá 1662 og Jóns Vídalíns.
- Víða spássíutilvísanir og athugasemdir með yngri hendi.
Band frá júlí 1936 (288 mm x 211 mm x 40 mm).
Þykk pappaspjöld klædd gráleitum pappír. Skinn á kili og hornum. Handritið liggur í öskju.
Fremsta og aftasta saurblað tilheyra bandi en tvinn úr skinni er framan við textablokkina.
Gamalt band frá 1886.
Einn seðill (162 mm x 106 mm) með hendi Árna Magnússonar festur við annað saurblað fremst, versóhlið, með upplýsingum um feril: “Þessa lögbók hefi ég 1703 fengið af magister Jóni Þorkelssyni, en honum af ekkju Jóns Magnússonar frá Eyri, 1700. Hafði Magnús Magnússon bókina gefið Jóni syni sínum og skal honum til forna hafa verið eign Jóns á Svalbarði.”
History
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1330-1340 (sjá ONPRegistre, bls. 441), en til fyrri hluta 14. aldar í Katalog I, bls. 279.
Magnús Magnússon gaf Jóni syni sínum (“Jóni Magnússyni eldra mínu afanafni”) handritið árið 1662, en ekkja Jóns, Ingibjörg Pálsdóttir á Eyri í Seyðisfirði, gaf það Jóni Þorkelssyni Vídalín árið 1700, en hann Árna Magnússyni 1703 (sbr. bl. 1r, seðil og AM 435 a 4to, bl. 178v-179). Sagnir í ætt eigenda herma að “gamli Jón Magnússon á Svalbarði” hafi átt handritið, og því nefndi Jón Sigurðsson það Svalbarðsbók (sbr. JS 409 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. apríl 1981.
Additional
- ÞS skráði 2.-7. janúar 2009 og síðar.
- DKÞ færði inn grunnupplýsingar 29. ágúst 2001.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 1. maí 1886(sjá Katalog I 1889:279 (nr. 501).
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í febrúar 1973.