Skráningarfærsla handrits

AM 341 fol.

Grágás ; Ísland, 1640-1660

Innihald

(1r-39v)
Grágás
Titill í handriti

Þingskapa þáttur

Athugasemd

Ófullgerð uppskrift eftir Konungsbók Grágásar, GKS 1157 fol.

Sami texti og í AM 339 fol. og virðist liggja því handriti til grundvallar.

Tungumál textans
íslenska
Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki 1: Dárahöfuð 1, með 4 meðalstórum bjöllum á kraga, 3 stórir hringir, enginn Hermes kross (IS5000-02-0341_1r), bl. 1510-1318222832-3335-37. Stærð: 121 x 63 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 49 mm.

    Mótmerki 1: Fangamark P (IS5000-02-0341_8v), bl. 814-172125-27313438-39. Stærð: 14 x 9 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 25 mm.

    Notað frá 1640 til 1660.

  • Aðalmerki 1 (par): Dárahöfuð 1, með 4 meðalstórum bjöllum á kraga, 3 stórir hringir, enginn Hermes kross (IS5000-02-0341_3r), bl. 37923-2430. Stærð: 123 x 65 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 49 mm.

    Mótmerki 1(par): Fangamark IP (IS5000-02-0341_6v), bl. 2619-2029. Stærð: 14 x 23 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 26 mm.

    Notað frá 1640 til 1660.

Blaðfjöldi
39 blöð (322-326 mm x 210-212 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerking með rauðu bleki, síðari tíma viðbót.

Kveraskipan

8 kver:

  • I: spjaldblað - fremra saurblað (eitt tvinn)
  • II: AM seðill - bl. 9 (5 tvinn: seðill+9, 1+8, 2+7, 3+6, 4+5)
  • III: bl. 10-17 (4 tvinn: 10+17, 11+16, 12+15, 13+14)
  • IV: bl. 18-25 (4 tvinn: 18+25, 19+24, 20+23, 21+22)
  • V: bl. 26-33 (4 tvinn: 26+33, 27+32, 28+31, 29+30)
  • VI: bl. 34-35 (1 tvinn: 34+35)
  • VII: bl. 36-39 (2 tvinn: 36+39, 37+38)
  • VIII: aftara saurblað - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 260 mm x 155 mm.
  • Línufjöldi er 38-42.
  • Griporð.

Ástand

  • Á spássíum og sérstaklega nær kili, eru vatnsskemmdir.
  • Gert hefur verið við blöð, nær kili.
  • Göt vegna skordýra.

Skrifarar og skrift

Kålund telur að skrifari sé Hákon Ormsson Katalog I, bls. 278.

Skreytingar

Upphafsstafir, 1-4 línur, mismunandi skreyttir.

Fyrirsagnir og millifyrirsagnir eru skrifaðar með stærri og meira flúruðu kansellíbrotaskrift.

Griporð eru skreytt, stundum með einföldum línum, stundum með stafaflúri niður blaðið. Sams konar stafaflúr má einnig finna í AM 108 fol. og AM 113 d fol.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Athugasemdir um efni handritsins og aðföng, fremst í handritinu með hendi Árna Magnússonar.
  • Efst á bl. 27r, með síðari tíma hönd, má lesa asa dingaþa.
  • Á neðri spássíu bl. 26v, kemur fyrir nafnið Jon Halldorsson.
  • Blýantsskrift/krot er á spássíu bl. 3r-4r.
  • Lesbrigði á spássíu bl. 38v.
  • Talan 341 þ.e. safnmarkið, skrifað nokkrum sinnum á fremra saurblað.

Band

Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, dökkt brúnt leður á kili og hornum.

Eldra pappaband. Á fremra spjaldi er talan 341, en á kili eru tveir límmiðar með safnmarki.

Fylgigögn

Fastur seðill (164 mm x 107 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: Þetta hefi ég víst fengið af Jóni Daðasyni, en hann frá Vallá.

Á versóhlið seðils, Af Saxonis.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Tímasett til um 1650 í Katalog I , bls. 278. Mögulega skrifað af Hákoni Ormssyni.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Jóni Daðasyni sem fékk það frá Vallá (sbr. athugasemd fremst).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. júlí 1973.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
  • MJG uppfærði skráningu með gögnum frá BS, 8. febrúar 2024.
  • EM uppfærði vatnsmerkin 1. júní 2023 og skráði kveraskipan 21. júní 2023.
  • ÞÓS skráði 8. júlí 2020. DKÞ skráði 28. ágúst 2001.
  • Tekið eftir Katalog I , bls. 278 (nr. 499). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1886.
Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í apríl 1967. Eldra band fylgir með í öskju.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Grágás

Lýsigögn