Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 265 fol.

Alþingisdómur frá 1634 ; Ísland, 1634-1676

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r)
Alþingisdómur frá 1634
Titill í handriti

Alþingisdómur Anno 1634

Upphaf

Öllum mönnum sem þetta bréf sjá eður heyra …

Athugasemd

Bréfið varðar yfirlýsingu um sjálfræði hins 19 ára Hákonar Bjarnasonar í Bakkarholti, en séra Jón Daðason hefur keypt þá jörð síðar eða 1663, sbr. bl. 18r-19r.

Efnisorð
2 (2r-3r)
Reglur um jarðakaup
Höfundur
Titill í handriti

Apologia. Um öll mín jarðakaup. Anno Domini 1665

Upphaf

Virðulegir herrar, höfðingjar og heiðursmenn …

Efnisorð
3 (4r-63r)
Eignaskjalabók séra Jóns Daðasonar
Athugasemd

Frumrit af dómum, kaupbréfum og fleiri skjölum varðandi jarðaviðskipti Jóns Daðasonar, prests á Arnarbæli, frá árunum 1649-1676.

Registur fyrir bréfunum er á bl. 59v-60r.

Þar fyrir aftan er hjúskaparsáttmáli frá 1676 og lagakaup.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki // Ekkert mótmerki (fastur seðill fremst í handriti, fyrir ÁM).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Stórt skjaldarmerki skipt niður í fjóra hluta, fjaðraskúfur að ofan // Ekkert mótmerki ( 1 , 52-54 , 58-59 ).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Þrír smárar með stilkum og bókstöfum DT í tvöföldum hring // Ekkert mótmerki ( 5-7 , 18-20 , 22 , 26-35 , 39 ).

Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Brenninetla // Ekkert mótmerki ( 40-42? , 44 , 61? ).

Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 1, fangamark CF? TC? ( 50 , 53 , 56 ) // Mótmerki: Fangamark MPB 1 ( 48 , 51 , 54 , 57 ).

Vatnsmerki 6. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 2 ( 55 ) // Mótmerki: Fangamark MPB 2 ( 49 ).

(vatnsmerki greinilegt t.d. á bl. 5).
Blaðfjöldi
i + 63 blöð (330 mm x 200 mm). Auð blöð: 1v, 3v, 5r-v, 9v, 15v, 48v, 52v-53r, 57v, 59r, 60v, 62v og 63v.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar 1-63.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 255-270 mm x 155-160 mm.
  • Línufjöldi er um 36-40 þar sem blöð eru fullskrifuð.

Ástand

Bleksmitun er nokkur og leturflötur hefur sums staðar dökknað.

Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Daðasonar, kansellíbrotaskrift.

Bl. 61r-62r eru þó með annarri hendi.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (337 mm x 206 mm x 18 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír, blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

Seðill (40 mm x 97) mm límdur framan á saurblað þar sem skrifað stendur: Þessa bók á ég Árne Magnússon.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 240, en skjölin eru dagsett árin 1634-1676.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. september 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞÓS skráði 3. júlí 2020.
  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P522. desember 2009.
  • DKÞ færði inn grunnupplýsingar 22. ágúst 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 3. febrúar 1886 (sjá Katalog I 1889:240 (nr. 420) .

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Vestmann, Jón
Titill: , Frá Selvogi. Vísur síra Jóns Vestmanns um Strandarkirkju. Kveðnar 1843
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Þorkelsson
Umfang: 1
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn