Höfundurinn skrifar undir Jön Gunnlaugſson, Skiølldulffstødum þann 9 Octobris Anno 1684. Þar aftan við er viðbót um að Sigurður Jónsson á Höskuldsstöðum í Breiðadal hafi endurritað verkið árið 1691.
Einungis skrifað á versósíður, rektósíður skildar eftir auðar, að bl. 1-2 undanteknum þar sem skrifað er bæði á rektó- og versósíður.
Leifar af nótum á bókfelli í bandi.
Víða viðbætur á rektósíðum með hendi Árna Magnússon og annarra.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með leifum af nótum.
Fastur seðill (159 mm x 105 mm)með hendi Árna Magnússonar: „Eftir ættartölubók Jóns Þorlákssonar sýslumanns. Og er integrum volumen in folio. Contulit annus. [með dekkra bleki:] I.T.S 1699 stendur utan á bandinu.“
Tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog I , bls. 236.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. febrúar 1976.