Bundið í eldra band í nóvember 1968 (264 mm x 200 mm x 8 mm). Pappaspjöld klædd pappír með ljósu maramaramynstri, leður á kili og hornum. Límt á móttök. Saurblöð úr nýju bandi, þar af tvíblöðungur milli handritsbrotanna.
Frá Eyri í Skutulsfirði (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 29. október 1992.
Viðgert og bundið í gamalt band í nóvember 1968.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-5.
Handritið er mjög blettótt, vegna vatnsskemmda eða líms.
Óþekktur skrifari, frumgotnesk skrift.
Fyrirsagnir eru rauðritaðar.
Rauðir og bláir upphafsstafir.
Á ýmsum tímum hafa verið færð inn íslensk mannanöfn við dánardægur (sbr. ONPRegistre, bls. 439).
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til um 1300 í Katalog I , bls. 230.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-2.
Tvinn.
Óþekktur skrifari, frumgotnesk skrift.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 14. aldar í Katalog I , bls. 230.