Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 249 i fol.

Rímtal (íslenskt) ; Ísland, 1590-1610

Innihald

1 (1v-7r)
Rímtal (íslenskt)
Athugasemd

Með viðbættum annálsgreinum og sagnfræðilegum athugasemdum.

Bl. 1r autt.

2 (7v)
Talbyrðingur
3 (8r-11v)
Reglur um útreikninga á árinu
Athugasemd

Með teikningum og töflum til leiðbeiningar. Samskonar og í AM 249 g fol.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
11 blöð (220 mm x 148 mm).
Umbrot

mm x mm

Skreytingar

Litskreyttar hringteikningar aftarlega.

Rauðir upphafsstafir.

Breytt letur o.fl. með rauðu bleki.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Annálsgreinum og sagnfræðilegum athugasemdum bætt inn í rímtalið á bl. 1v-7r.

Band

Fylgigögn

fastur seðill (164 mm x 106 mm) með hendi Árna Magnússonar: Þetta er Calendarium það sem stóð framan við Grallarann er ég fékk af Ragnheiði Markúsdóttur í Stóradal, qvem alibi descripsi et postea descerpsi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til um 1600 í Katalog I , bls. 229. Stóð áður framan við grallara (sbr. seðil).

Ferill

Árni Magnússson fékk rímtalið og grallarann sem það stóð með frá Ragnheiði Markúsdóttur í Stóradal og skildi þessa hluta í sundur (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. júlí 1978.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 229 (nr. 398). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1886.DKÞ skráði 9. mars 2001.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn