Í rímtalinu er að finna nöfn og dánardægur íslenskra karla og kvenna ásamt athugasemdum á íslensku um daga föstunnar.
mm x mm
Heilsíðumynd á bl. 7v af Kristi á krossinum og Maríu og Jóhannesi til hvorrar handar.
Rauðir og bláir upphafsstafir.
Sex illskiljanlegar línur efst á bl. 1r, sem upprunalega var autt; mögulega galdraþula eða villuletur. Þar neðan við tvær og hálf lína (línur 7-9) með athugasemdum um gjöld til kirkjunnar á Eyri í Skutulsfirði. Þessar línur eru tímasettar til c1400 í ONPregistreistre , bls. 439.
Fastur seðill (162 mm x 102 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Frá Eyri í Skutulsfirði. Framan við saltaraslitur.“
Tímasett til c1300-1400 (sjá ONPregistre , bls. 439) en til 13. aldar í Katalog I , bls. 227. Var áður framan við saltara (sbr. seðil).
Árni Magnússon segir handritið komið frá Eyri í Skutulsfirði (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. mars 1992.
Yfirfarið í febrúar 1992.
Viðgert 1968.