„Vmm Byskup Stephan“
„Vmm Biskup Augmund“
„Vm høfudz mennena og vmm atrekanda vmm ſyda ſk|yptenn og adtektter J videy“
„Vm Byſkupa skypte“
„Vm ſlag Danſkra J Schalhollte“
„Nockur ägrip vmm gømlu sidena“
„Enn meyra vmm hera Giſsur Einarſson“
Hér inní tekin upp tíu bréf eða önnur skrif frá biskupunum Ögmundi (3) og Gissuri Einarssyni (6) og Kristjáni konungi III (1).
„Vmm Herra Martein Einarſon“
„Skipta Bref Barna Lopts Ryka“
„Fryheyta Bref Eggers Eggerssonar“
„Myn ættartala fra Eggerth Eggerthſyne“
Ættartala skrifarans, Jóns Gissurarsonar.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð (vatnsmerki 2 og 3) // Mótmerki: Óflokkanlegt vatnsmerki ( 1-2 , 4-5 , 8 , 11 , 13-15 , 21-22 , 26-28 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Dárahöfuð 1, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 meðalstórir hringir og stafur ( 6-7 , 9-10 , 12 , 16-18 , 29-30 ) // Mótmerki: Vatnsmerki 1.
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Dárahöfuð 2, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 meðalstórir hringir ( 3 , 20 , 23-25 ) // Mótmerki: Vatnsmerki 1.
Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam? // Ekkert mótmerki ( 34 , 36 , 38-39 , 43 , 46 , 47? ).
Blaðsíðumerkt (frá 1), líklega seinni tíma viðbót.
Eyður fyrir upphafsstafi.
Ein hönd.
Seðill með hendi Árna Magnússonar.
Skrifað af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 175, en virkt skriftartímabil Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 209 fol. og AM 213 fol.
Bókin sem handritið tilheyrði var frá Brimnesvöllum (Brimilsvöllum?) og gekk frá Sigurði Björnssyni lögmanni til Margrétar Magnúsdóttur. Árni Magnússon fékk hana frá eiginmanni Margrétar, Gísla Jónssyni, og tók í sundur (sbr. seðil og seðla í AM 209 fol. og AM 213 fol.).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. september 1974.