Skráningarfærsla handrits

AM 213 fol.

Biskupaannálar Jóns Egilssonar ; Ísland, 1625-1672

Innihald

(1r-31r)
Biskupaannálar Jóns Egilssonar
Höfundur

Jón Egilsson

Titill í handriti

Nockrar fraſagner þeirra hluta ſem ädur ä | fyrre Timumm hafa ſkied j tïd þeirra biſkupa ſem fyrre voru | J eitt ſaman ſkrifad til minnis epter þui sem eg hefe heyrt gamla menn | seigia epter ſogn ſinna forfedra. Og eg hefe einninn heyrt mína forfedur | mier ſkyra. Og ſyra Einar Olafſſon minn Afe sa er fæddur var Anno 1497. Enn til ſumra hluta hefe eg ſialfur vitad

Athugasemd

Aftan við lok annálsins, á bl. 31r, er yfirskrift nýs efnisþáttar: Nu er vmm ætt herra Gyſla.

Bl. 31v, 32 og 33 þar aftan við auð.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Stórt skjaldarmerki skipt niður í fjóra hluta með fjaðraskúf að ofan // Ekkert mótmerki ( 5 , 7-11 , 16-19 , 22 , 24-25 , 28 , 30-31 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki með ljóni sem heldur á örvum // Ekkert mótmerki (hluti af blaði fyrir ÁM).

Blaðfjöldi
33 blöð (315 mm x 200 mm).
Tölusetning blaða

Blaðsíðumerkt 1-23, líklega síðari tíma viðbót. Gæti verið með hendi Árna Magnússonar (enda með ljósgulu bleki eins og ýmsar athugasemdir hans í handritinu).

Umbrot

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Nótur

Nótur á bókfelli í gömlu bandi.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Ýmsar athugasemdir, leiðréttingar og viðbætur á spássíum, að hluta með hendi Árna Magnússonar (með ljósgulu bleki).

Band

Band frá 1975.

Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum.

Fylgigögn

Fimm seðlar með hendi Árna Magnússonar, auk seðils sem hefur verið klipptur eða skorinn úr öðru handriti.

  • Seðill 1(161 mm x 104 mm): af Annálum séra Jóns Egilssonar (sc: Continuatione Hungurvöku) eru til á Íslandi mörg exemplaria. Eru flestöll þar af lítils verð (og) röng, bæði í ártölunum og nominibus propriis.
  • Seðill 2 (110 mm x 99 mm): Misskrifað víða, þó eigi svo mjög í atriðum samt sem áríður undanfelld sem á orð aukið í sem á orðum interpolerad í ættartölum.
  • Seðill 3(121 mm x 164 mm): Biskupaannálar séra Jóns Egilssonar með hendi séra Jóns í Villingaholti. Eru úr bók þeirri er lögmaðurinn Sigurður Björnsson gaf Margréti Magnúsdóttur, en Gísli Jónsson fékk mér til eignar.
  • Seðill 4 (milli bl. 21v og 22r)(130 mm x 74 mm) með útdrætti úr sögunni.
  • Seðill 5 (milli bl. 23v og 24r)(86 mm x 159 mm) með útdrætti úr sögunni.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 173, en virkt skriftartímabil Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil c). Í þeirri bók voru einnig AM 209 fol. og AM 216 fol.

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var frá Brimnesvöllum (Brimilsvöllum?) og gekk frá Sigurði Björnssyni lögmanni til Margrétar Magnúsdóttur. Árni Magnússon fékk hana frá eiginmanni Margrétar, Gísla Jónssyni, og tók í sundur (sbr. seðil c og seðla í AM 209 fol. og AM 216 fol.).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. júlí 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 173-174 (nr. 331). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1886. DKÞ skráði 30. apríl 2001. ÞÓS skráði 1. júlí 2020.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Yelena Sesselja Helgadóttir (Yershova)
Titill: Són. Tímarit um óðfræði, Íslenskar lausavísur og bragfræðilegar breytingar á 14.-16. öld
Umfang: 3
Lýsigögn
×

Lýsigögn