Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 209 fol.

Hungurvaka ; Ísland, 1625-1672

Innihald

1 (1r-26r)
Hungurvaka
Titill í handriti

Hungurvaka

Efnisorð
2 (26v-73v)
Þorláks saga helga
Titill í handriti

Sagann Af Þorlake | biskupe helga

Athugasemd

Uppskrift eftir tveimur forritum (sbr. JS 409 4to).

Bl. 70 og 73 skilin eftir auð að rúmlega helmingi og bl. 74-76 alveg auð til að tákna eyður í texta.

Efnisorð
3 (77r-98v)
Páls saga biskups
Titill í handriti

Frasaugn hin ſierlig|aſta Af Pale Jonsſyne skal|holts biskupe ok fleirum biskupum

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Ljón með tvær rófur og stendur á vopni // Ekkert mótmerki (fastur seðill fremst í handriti).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam // Ekkert mótmerki ( 4? , 6? , 8? , 12 , 14-15 , 20-21? , 22-24 , 31-33? , 45? , 47-48 , 50-54 , 56-57? , 61-62 , 65 , 68 , 71-73 , 84-85 ).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Dárahöfuð 1, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 meðalstórir hringir ( 80? , 87? , 89 , 98 ) // Mótmerki: Vatnsmerki 4.

Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Dárahöfuð (vatnsmerki 3 og 5) // Mótmerki: Fangamark PR ( 88 , 90-91 , 96-97 , 99 ).

Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Dárahöfuð 2, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 meðalstórir hringir og stafur ( 81 , 92-93 , 95? ) // Mótmerki: Vatnsmerki 4.

Blaðfjöldi
98 blöð (304 mm x 197 mm).
Tölusetning blaða

Blaðsíðumerkt 1-196, líklega síðari tíma viðbót.

Umbrot

Eyður fyrir upphafsstafi.

Ástand

Bl. 1 máð og dekkra en hin blöðin.

Skrifarar og skrift

Ein hönd, brotaskrift.

Nótur

Nótur á bókfelli í bandi.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Spássíukrot með 17. aldar hendi hér og þar á bl. 1r-26r, strikað yfir flest.

Band

Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum.

Fylgigögn

Fastur seðill (136 mm x 165 mm)með hendi Árna Magnússonar: Hungurvaka. Þorláks saga biskups. Páls saga biskups. Með hendi séra Jóns Erlendssonar. Eru úr bók þeirri er ég fékk af Gísla Jónssyni, en Margrét Magnúsdóttir kona hans af Sigurði Björnssyni Lögmanni.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 171, en virkt skriftartímabil Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók. Í sömu bók voru AM 213 fol. og AM 216 fol.

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var frá Brimnesvöllum (Brimilsvöllum?) og gekk frá Sigurði Björnssyni lögmanni til Margrétar Magnúsdóttur. Árni Magnússon fékk hana frá eiginmanni Margrétar, Gísla Jónssyni, og tók í sundur (sbr. seðil og seðla í AM 213 fol. og AM 216 fol.).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. maí 1985.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 171-172 (nr. 327). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1886. DKÞ skráði 25. apríl 2001. ÞÓS skráði 1. júlí 2020.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Titill: , Byskupa sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 13:1
Titill: , Byskupa sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 13:2
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Andersen, Merete Geert
Titill: Colligere fragmenta, ne pereant,
Umfang: s. 1-35
Höfundur: Bekker-Nielsen, Hans, Shook, L. K., Widding, Ole
Titill: The Lives of the Saints in Old Norse Prose: A Handlist, Mediaeval Studies
Umfang: s. 294-337
Titill: Biskupa sögur
Umfang: I-II
Titill: , Biskupa sögur II
Ritstjóri / Útgefandi: Ásdís Egilsdóttir
Umfang: 16
Lýsigögn
×

Lýsigögn