„Hungurvaka“
„Einn lítill bæklingur af fáum biskupum …“
„… og þolinmæði við óhlýðna menn og rangláta.“
Endir Hungurvöku.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með bleki 1-49.
Sjö kver.
Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellíbrotaskrift undir áhrifum frá fljótaskrift.
Band frá 19. öld (320 mm x 208 mm x 16 mm). Pappaspjöld klædd pappír með brúnu marmaramynstri. Kjölur klæddur bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum. Saurblað tilheyrir bandi.
Fastur seðill sem límdur er á saurblað fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna og feril: „Hungurvaka. Biskupaannáll séra Jóns Egilssonar. Eftir exemplari chartaceo parum accurate scripto. Stóð framan á bókinni með hendi Ásgeirs Jónssonar. Úr núm. 12 frá sál. Assessor Thormod Toruesens enke 1720.“
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I, bls. 170, en virkt skriftartímabil Ásgeirs var ca 1686-1707.
Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 224 fol. og AM 142 fol. (sbr. AM 435 b 4to).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XII í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. september 1974.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.