Skráningarfærsla handrits

AM 205 fol.

Biskupasögur og ýmislegt annað um biskupa á miðöldum ; Ísland, 1644

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-13v)
Hungurvaka
Titill í handriti

Einn lítill bæklingur af fáum biskupum sem verið hafa á Íslandi þeim fyrstu og hvörnin Skálholt var fyrst byggt og þar settur biskupsstóll og af hvörjum það var tilsett og nær.

Upphaf

Bækling þennan kalla eg Hungurvöku …

Niðurlag

… við óhlýðna menn og rangláta. FINIS.

Efnisorð
2 (14r-32v)
Þorláks saga helga
Titill í handriti

Sagan af Þorláki biskupi helga

Upphaf

þann tíma er stýrði Guðs kristni Anakletus páfi …

Niðurlag

… fyrir Guði og mikils ráðandi. Finis.

Athugasemd

Bl. 26v og 27r-v auð til að tákna eyðu í textanum.

Efnisorð
3 (32v-33v)
Guðmundar saga biskups
Titill í handriti

Klausa úr sögu Guðmundar góða Hólabiskups um staði á Íslandi af hvörjum rökum þeir eru komnir undir andlegt vald frá leikum svo sem lesa má í sögu Árna biskups og þrætti á mót Rafn Oddsson riddari og aðrir leikmenn.

Upphaf

Virðuglegur herra heilagur Þorlákus, nýorðinn biskup …

Niðurlag

… hjálpin öll af þér, í hjarta mér. Finis.

Athugasemd

Hluti sögunnar.

Kafli sem fjallar um uppruna deilu kirkjunnar manna og leikmanna um eigur kirkjunnar.

Efnisorð
4 (34r-45r)
Páls saga biskups
Titill í handriti

Frásögn hin sérligasta af Páli Jónssyni Skálholtsbiskupi og fleirum biskupum

Upphaf

Páll var son Jóns hins göfuga manns Loptssonar Sæmundarsonar hins fróða …

Niðurlag

… gleðji almáttugur Guð hann í sífellu í eilífri dýrð amen, amen.

Efnisorð
5 (46r-71r)
Jóns saga helga
Titill í handriti

Sagan af Jóni helga Ögmundarsyni fyrsta Hólabiskupi

Upphaf

Þann tíma byrjum vér frásögu af hinum heilaga Jóni biskupi …

Niðurlag

… og báru til grafar heiðarliga jarðandi.

Skrifaraklausa

Nú hef eg skrifað þessa sögu alla, jarteikn læt eg undan falla, hefji oss Guð á himna palla. Anno 1644.

Efnisorð
6 (71r-71v)
Um biskupa í Skálholti og á Hólum
Upphaf

Á Íslandi hafa verið margir biskupar innlendir …

Niðurlag

… Jörundur Þorsteinsson hann var biskup.

Efnisorð
7 (72r-72v)
Skrá yfir biskupa í Skálholti og á Hólum
Titill í handriti

Þessir biskupar hafa verið í Skálholti

Athugasemd

Sett upp í tvo dálka sem hvor hefur sína fyrirsögn.

Upptalningin nær frá Ísleifi Gissurarsyni og Jóni Ögmundssyni og hefur upprunalega endað á Brynjólfi Sveinssyni og Þorláki Skúlasyni en seinna hefur verið bætt við setningu um Brynjólf ásamt nöfnum Þórðar Þorlákssonar (Skálholti) og Gísla Þorlákssonar (Hólum). Nöfnum Jóns Vigfússonar og Einars Þorsteinssonar hefur svo verið bætt við með enn annarri hendi neðst í dálkinn um Hólabiskupa.

Var áður á milli Hungurvöku og Þorláks sögu en Árni Magnússon tók þaðan og setti aftast (sbr. seðil).

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með krossi umvafinn snáki, fangamark HS og kóróna // Ekkert mótmerki ( 1-2 , 5-6 , 9 , 11 , 13 , 34 , 36 , 38 , 40 , 42 , 44 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Hús með krossi og snáki // Ekkert mótmerki ( 15 , 17 , 19 , 21 , 23-24 , 29-32 , 46 , 51-54 , 57-59 , 61 , 65-67 , 69-70 ).

(Vatnsmerki, sérstaklega skýrt á fremra saurblaði aftast).
Blaðfjöldi
i + 72 + ii blöð (290 mm x 187 mm). Blað 45v autt og blöð 26v-27v eru auð til að tákna eyðu í textanum.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar, sumt með rauðu bleki.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Umbrot er mismunandi eftir því á hvorn pappírinn skrifað er.
  • I: Blöð 1-13, 34-45 og 72:

    Leturflötur er ca 232-235 mm x 140-143 mm.

    Línufjöldi er 36-39.

  • II: Blöð 14-33 og 46-71:

    Leturflötur er ca 222-230 mm x 140-145 mm.

    Línufjöldi er ca 31-34.

  • Lok efnisþátta enda stundum í totu, bl. 1v, 32v, 45r.
  • Eyða fyrir upphafsstaf á bl. 14r (leiðbeiningarstafur Þ er ritaður í eyðuna en ætti að vera Í), 34r, 46r.

Ástand

Í handritinu er tvenns konar pappír. Önnur tegundin hefur dökknað allverulega á textasvæðinu sem á sér líklega efnafræðilegar skýringar (sjá bl. 14-33 og 46-71). Textinn er þó alllæsilegur.

Skrifarar og skrift

Mestmegnis með hendi Jóns Gissurarsonar, léttiskrift.

Blað 72 með hendi Torfa Jónssonar, léttiskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Viðbætur á bl. 72v með óþekktri hendi, fljótaskrift.
  • Nokkrar spássíugreinar með hendi séra Jóns Ólafssonar prests á Rauðasandi (sbr. seðil).
  • Spássíugreinar með hendi Árna Magnússonar á bl. 9v og 33v.

Band

Band líklega frá tímabilinu 1880 til 1920 (294 mm x 192 mm x 19 mm). Pappaspjöld klædd dökkum marmarapappír, leður á kili. Saurblöð tilheyra bandi.

Fylgigögn

Seðill (194 mm x 148 mm) með hendi Árna Magnússonar: Hungrvaka. Þorlaks biskups saga. Ur Gudmundar biskups sgu excerptum 1. Caput. Pals saga biskups. Jons saga biskups, ens helga. De Episcopis Jslandiæ, frivola quondam. Series Episcoporum Jslandiæ exigui momenti [á eftir á að vera] þessa litilsverda series stöd ä bladi milli Hugrvku og Þorlaks sgu. Eg tok hana þadan, og setti sidarst, i þetta volumen. Allt med hendi Jons Gissursonar, (fdur Sr Torfa i Bæ) og tekid ur þeirre bok er eg feck af Þorlake Þordarsyne. [á verso-síðu:] Þessar Biskupa sgu hafa vered i hndum Sr Jons Olafssonar, prestz ä raudasande, sem siä er af nockrum fám annotationibus in margine, hveriar med hans hende ritadar eru.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 169, en sennilega skrifað 1644 (sbr. bl. 71r).
  • Handritið var áður hluti af stærri bók. Í henni kunna einnig að hafa verið handritin AM 109 fol. og AM 215 fol. (sbr. athugasemdÁrna Magnússonar í AM 389 4to).

Ferill

Sjá má af spássíugreinum séra Jóns Ólafssonar prests á Rauðasandi að bókin sem handritið tilheyrði hefur verið í hans fórum (sbr. seðil, einnig seðil í AM 210 fol.). Árni Magnússon fékk bókina frá Þorláki Þórðarsyni og tók handritið úr henni (sbr. seðil, einnig seðil í AM 210 fol.).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. mars 1985.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Slay, Desmond
Titill: , The manuscripts of Hrólfs saga kraka
Umfang: XXIV
Titill: , Byskupa sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 13:1
Titill: , Byskupa sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 13:2
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Andersen, Merete Geert
Titill: Colligere fragmenta, ne pereant,
Umfang: s. 1-35
Höfundur: Bekker-Nielsen, Hans, Shook, L. K., Widding, Ole
Titill: The Lives of the Saints in Old Norse Prose: A Handlist, Mediaeval Studies
Umfang: s. 294-337
Titill: , Jóns saga Hólabyskups ens helga
Ritstjóri / Útgefandi: Foote, Peter
Umfang: 14
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Sagas of Icelandic bishops. Fragments of eight manuscripts, Introduction
Umfang: s. 9-61
Titill: , Biskupa sögur II
Ritstjóri / Útgefandi: Ásdís Egilsdóttir
Umfang: 16
Lýsigögn
×

Lýsigögn