Skráningarfærsla handrits

AM 189 fol.

Sigurðar saga þögla ; Ísland, 1625-1672

Innihald

(1r-62v)
Sigurðar saga þögla
Titill í handriti

Saga af Sigurde Þǫ̉gla

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð 1 // Mótmerki: Flagg ICO ( 1-2 , 8 , 48 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Dárahöfuð 1, með 4 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir // Ekkert mótmerki ( 3 , 4-5? , 9-10 , 41 , 43 , 46-47? , 51-52 , 53-55 ).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Skjaldarmerki með sverðlilju? // Ekkert mótmerki ( 11-14? , 16? , 21-22 , 24? , 26? , 28? , 32? , 35? , 37? , 40? , 42? ).

Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Dárahöfuð 2 // Mótmerki: Fangamark, D eða G? ( 56-58 , 61 ).

Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Dárahöfuð 2, með 5 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir // Ekkert mótmerki ( 62? ).

Vatnsmerki 6. Aðalmerki: Dárahöfuð 3, með 7 meðalstórum bjöllum á kraga og 3 stórir hringir // Ekkert mótmerki (fastur seðill aftast í handriti).

Blaðfjöldi
62 blöð (315 mm x 206 mm).
Tölusetning blaða

Blaðsíðumerking að hluta til með hendi Árna Magnússonar en að mestu leyti eldri.

Umbrot

Eyður fyrir upphafsstafi.

Skrifarar og skrift

Ein hönd, brotaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Spássíugrein á bl. 18r með hendi Árna Magnússonar.

Band

Band frá 1976.

Fylgigögn

Fastur seðill (156 mm x 113 mm) með hendi skrifara Árna Magnússonar: Frá sál. Assessor Thormod Toruesens enke 1720.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 156, en virkt skriftartímabil Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 187 fol., Eddukvæði og rit og ritgerðir Jóns lærða og Björns á Skarðsá (sbr. AM 435 b 4to, bl. 9v?).

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XVII í safni Þormóðar Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðar árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b 4to, bl. 9v?).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. apríl 1987.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 156 (nr. 289). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 13. janúar 1886. DKÞ skráði 18. apríl 2001. ÞÓS skráði 29. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í mars 1976. Eldra band fylgir ekki.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir af ýmsu efni úr eldra bandi í tveimur möppum á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, í kassa ásamt fleiri myndum frá Kaupmannahöfn af gömlu bandi.

Notaskrá

Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Athuganir Árna Magnússonar um fornsögur, Gripla
Umfang: 4
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Einar Gunnar Pétursson
Titill: , Eddurit Jóns Guðmundssonar lærða
Umfang: XLVI
Lýsigögn
×

Lýsigögn