„Magus saga“
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð 1, með 5 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir ( 3 , 6-7 , 9-10 , 12-13 , 15? , 20 , 24-25 , 28-29? , 33 , 35 , 37-40 , 43 , 45 , 47-48 , 50 , 52 , 54 , 56 , 58 , 63 , 65 , 67 ) // Mótmerki: Fangamark D ( 4-5 , 16? , 26 , 30? , 31-32 , 34 , 36? , 41-42 , 44 , 46 , 51 , 55? , 62? , 64 , 66 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Stórt skjaldarmerki skipt niður í 4 hluta með fjaðraskúfi að ofan // Ekkert mótmerki ( 17 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Konuhöfuð með bókstöfum ICO fyrir neðan ( 69 , 72-73 , 75 , 79-80 , 82 , 85-86 , 88 , 90 , 92-93 , 95 , 103 , 105 , 107 ) // Mótmerki: Flagg ICO ( 60 , 71 , 74 , 76-77 , 81 , 83-84 , 89 , 91 , 94 , 96 , 97 , 99-100 , 102 , 104 , 106 ).
Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Dárahöfuð 2, með 4 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir // Ekkert mótmerki ( 78 , 98 , 101 ).
Ein hönd, brotaskrift.
Leiðrétting á spássíu bl. 104v með hendi Árna Magnússonar.
Band frá 1700-1730. Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr sjókortum.
Skrifað af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 155, en virkt skriftartímabil Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 189 fol., Eddukvæði og rit og ritgerðir Jóns lærða og Björns á Skarðsá (sbr. AM 435 b 4to, bl. 9v?).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XVII í safni Þormóðar Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðar árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b 4to, bl. 9v?).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 22. maí 1996.
Viðgert í nóvember 1994 til febrúar 1995, þá einnig gerð askja. Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi frá Kaupmannahöfn.
Viðgert í nóvember 1981 til mars 1982.
Bundið í Kaupmannahöfn 1700-1730.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.