Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 182 fol.

Vilhjálms saga sjóðs ; Ísland, 1635-1648

Innihald

1 (1r-38v)
Vilhjálms saga sjóðs
Titill í handriti

Sagann Af Wilialme siöd | Er fundeſt ſkal hafa J Babylon | Og ſamſett af Homero

Athugasemd

Bl. 39 autt.

Efnisorð
2 (40r-48v)
Ála flekks saga
Titill í handriti

Saga Af Ala Fleck

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Bær 1, með þremur turnum og fangamarki HB // Ekkert mótmerki ( 2 , 4 , 6 , 8 , 10 , 13-14 , 16-17 , 19 , 21 , 23 , 26-27 , 29 , 32-34 , 37-38 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Bær 2, með þremur turnum, fangamarki C4 og virðist einnig vera fangamark IK ( 40 , 42-43 , 46 , 48 ) // Mótmerki: Bókstafur S ( 41 , 44-45 , 47 ).

Blaðfjöldi
48 blöð (295 mm x 195 mm).
Umbrot

Skrifarar og skrift

Ein hönd, brotaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Viðbót við fyrirsögn á bl. 1r, með hendi Brynjólfs Sveinssonar biskups: (non qvod home|rus hoc opus unqvam ſcripſerit, verum qvod ma|teriam hyperbolarum auctor ex Homero hauſerit).

Band

Band frá 1982.

Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.

Á bókfellinu er stór litskreyttur upphafsstafur.

Fylgigögn

Fastur seðill (178 mm x 159 mm) með hendi Árna Magnússonar: Vilhjálms saga sjóðs. Ála flekks saga. Með hendi séra Jóns Erlendssonar í Villingaholti. Úr bók er ég fékk af séra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað af Jóni Erlendssyni og tímasett til c1635-1648, en til 17. aldar í Katalog I , bls. 154. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Sú bók innihélt einnig AM 134 fol.

Ferill

Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá sr. Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. október 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 154 (nr. 283). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 19. janúar 1886. DKÞ skráði 11. apríl 2001. ÞÓS skráði 29. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið 1982. Eldra band fylgir.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Loth, Agnete
Titill: Sønderdelte arnamagnæanske papirhåndskrifter,
Umfang: s. 113-142
Lýsigögn
×

Lýsigögn