„Hier Byriar He|ctors saugu ok hanz | kappa“
Bl. 9r skilið eftir autt að mestu til að tákna eyðu í texta.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir // Ekkert mótmerki (fastur seðill fremst í handriti).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki með sverðlilju og kórónu efst // Ekkert mótmerki ( 1-3 , 8-9 , 11 , 14 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Óflokkanlegt vatnsmerki // Ekkert mótmerki ( 15 ).
Upprunaleg blaðmerking 402-416.
Athugasemd með hendi Árna Magnússonar á efri spássíu bl. 1r: Scripta olim ex Membrana qvæ hodie [1692] ſervatur penes Arnam Magnæum.
Band frá 1982.
Seðill með hendi Árna Magnússonar.
Tímasett til um 1650 í Katalog I , bls. 151. Var áður hluti af stærri bók sem samkvæmt Jóni Sigurðssyni var skrifuð um 1640-1650 og innihélt einnig AM 181 a-c fol., AM 181 e-h fol. og AM 181 k-l fol. (sbr. JS 409 4to). Að auki voru í bókinni Elis saga, Flóvents saga og Jarlmanns saga, sem ekki er nú að finna í neinu þessara handrita (sbr. AM 477 fol.).
Bókin sem handritið tilheyrði var í eigu Þorsteins Björnssonar prests á Útskálum og síðar Sigurðs Björnssonar lögmanns (sbr. JS 409 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 5. október 1995.
Viðgert og bundið í mars til júní 1982. Eldra band fylgir. Lýsing á ljósmyndun og viðgerð ásamt skrá um kveraskiptingu fylgdi frá Kaupmannahöfn.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.