„Sagan af kóng Hálfdani svarta Eysteinssyni“
„Á fyrri manna öldum réð sá kóngur …“
„… og dóttur er Ingibjörg hét.“
Og lúkum vér hér þessari sögu af Hálfdani Eysteinssyni.
Sörla saga sterka og Sturlaugs saga starfsama hafa áður staðið framan við Hálfdanar sögu í þessu handriti og Bósa saga aftan við (sbr. seðil).
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með bleki 1-6.
4 kver:
Handritið er nokkuð skítugt en texti er óskertur.
Með hendi Sigurðar Jónssonar á Knerri, kansellískrift.
Band frá 1982 (311 mm x 214 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Gamalt band frá árunum 1772-1780. Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Fastur seðill (103 mm x 171 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna handritsins: „Sörla saga sterka. Sturlaugs saga starfsama. Hálfdanar saga Eysteinssonar. Bósa saga (ólík öðrum) allar með hendi Sigurðar Jónssonar á Knörr [Knerri].“
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 141.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. október 1982.
Myndað 1976.
Lagfært og bundið 1982. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.