„Søgu þättur af Jlluga | Grydar föſtra“
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum ( 3-4, 7-8 ) // Mótmerki: Fangamark PH ( 2, 5-6 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam // Ekkert mótmerki (fastur seðill fremst í handriti).
Blaðmerking með blýanti á neðri spássíu, 1-8, síðari tíma viðbót.
3 kver:
Ein hönd, Jón Erlendsson, kansellíbrotaskrift.
Eyður fyrir stóra upphafsstafi (ca. 3 línur). Aðrir upphafstafir eru skrifaðir af skrifara, eru 1-2 línur og eru blekdregnir skrautstafir.
Fyrsta lína oft skrifuð með stærri skrift.
Við lok texta er stafaflúr.
Band frá 1982, bundið í Kaupmannahöfn áður en handritið kom til Íslands.
Spjöld eru klædd fínofnum striga.
Áður pappaband frá tíma Kålund með marmarapappír á spjöldum.
Skrifað á og af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 141, en virkt skriftartímabil Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 1 a fol., AM 9 fol., AM 139 fol., AM 156 fol., AM 169 a fol., AM 169 b fol., AM 192 fol. og AM 202 b fol.
Árni Magnússon fékk handritið lánað hjá Jóni Þorlákssyni árið 1709 og keypti það af honum árið 1710 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. október 1983.