„Søgu þättur af Jlluga | Grydar föſtra“
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum (3-4, 7-8) // Mótmerki: Fangamark PH (2, 5-6).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam // Ekkert mótmerki (fastur seðill fremst í handriti).
Blaðmerking með blýanti á neðri spássíu, 1-8, síðari tíma viðbót.
3 kver:
Ein hönd, Jón Erlendsson, kansellíbrotaskrift.
Eyður fyrir stóra upphafsstafi (ca. 3 línur). Aðrir upphafstafir eru skrifaðir af skrifara, eru 1-2 línur og eru blekdregnir skrautstafir.
Fyrsta lína oft skrifuð með stærri skrift.
Við lok texta er stafaflúr.
Band frá 1982, bundið í Kaupmannahöfn áður en handritið kom til Íslands. Spjöld eru klædd fínofnum striga.
Áður í pappabandi frá tíma Kålund með marmarapappír á spjöldum.
Skrifað á Íslandi af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 141, en virkt skriftartímabil Jóns var ca 1625-1672.
Handritið var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig blöðin sem nú eru í AM 1 a fol., AM 9 fol., AM 169 a fol., AM 169 b fol., AM 192 fol. og AM 202 b fol.
Árni Magnússon fékk stærra handritið lánað hjá Jóni Þorlákssyni árið 1709 og keypti það af honum árið 1710 (sbr. seðil).
Í 1730 voru blöðin í þessu handriti hluti af No. 169 in fol. (sbr. AM 456 fol., 5r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. október 1983.