Skráningarfærsla handrits

AM 169 a fol.

Egils saga einhenda og Ásmundar berserkjabana ; Ísland, 1625-1672

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-21v)
Egils saga einhenda og Ásmundar berserkjabana
Titill í handriti

Sagann af Eigle Einhendta

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum (6-10, 12-14, 18, 21) // Mótmerki: Fangamark PH (1-5, 11, 15-17, 19, 22).

Blaðfjöldi
i + 21 + i blað (317 mm x 196 mm). Blað 22r-v er autt.
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðmerking í efri ytra horni 1-21 með svörtu bleki.

Kveraskipan

6 kver:

  • I: spjaldblað - fylgigögn 1 (eitt tvinn + eitt blað)
  • II: bl. 1-10 (5 tvinn: 1+10, 2+9, 3+8, 4+7, 5+6)
  • III: bl. 11-18 (4 tvinn: 11+18, 12+17, 13+16, 14+15)
  • IV: bl. 19-20 (tvö blöð)
  • V: bl. 21-22 (tvö tvinn: 21+22)
  • VI: aftara saurblað - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er 230 mm x 125 mm.
  • Línufjöldi er 23-25.
  • Lok sögunnar endar í totu.
  • Síðutitlar.
  • Eyður fyrir upphafsstafi.
  • Griporð, bl. 19v.
Ástand
  • Blettótt.
  • Bleksmitun.
  • Spássíugreinar skertar vegna afskurðar.
  • Eldri viðgerðir.
Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Erlendssonar, kansellíbrotaskrift.

Skreytingar

Eyður fyrir stóra upphafsstafi (3-4 línur). Minni upphafstafir blekdregnir skrautstafir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Spássíugreinar hér og þar.

Band

Band frá 1982.

Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum.

Eldra band frá frá tíma bókavarðarins Jens Jacob Weber, c1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með dökk brúnu bleki. Á spjaldblöðum er prentað mál. Tveir límmiðar með safnmarki og hlaupandi númeri á kili.

Varðveitt með handritinu.

Fylgigögn
Fastur seðill (82 mm x 158 mm) með fyrirsögn með hendi Árna Magnússonar, en afgangur með hendi skrifara: Saga Egils einhenda. Með hendi séra Jóns í Villingahollti. Léð mér af Jóni Þorlákssyni 1709 og síðan seld 1710. Var til forna í innbundinni bók.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á Íslandi af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 140, en virkt skriftartímabil Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 1 a fol., AM 9 fol., AM 139 fol., AM 156 fol., AM 169 b fol., AM 169 d fol., AM 192 fol. og AM 202 b fol.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið lánað hjá Jóni Þorlákssyni árið 1709 og keypti það af honum árið 1710 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. október 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
  • MJG uppfærði með gögnum frá BS, 12. mars 2024.
  • EM skráði kveraskipan 20. júní 2023.
  • ÞÓS skráði 25. júní 2020.
  • DKÞ skráði 20. mars 2001.
  • Tekið eftir Katalog I, bls. 140 (nr. 249). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 7. janúar 1886.
Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn 1982. Eldra band fylgdi.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Negatíf örfilma frá október 1993 á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi (askja 394).

Notaskrá

Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn