„Hér byrjast lífsaga hins kynduga Króka-Refs hvör eð inniheldur öll hans morð og mannliga gjörninga. Skrifuð eftir gömlum sögum.“
„Á dögum Hákonar kóngs Aðalsteinsfóstra …“
„… og er margt göfugra manna frá honum komið.“
Og lúkum vér svo þessari sögu.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með bleki, 1-13; bl. 14 er ótölusett.
4 kver:
Með hendi Jóns Gissurarsonar, léttiskrift.
Band frá maí 1975 (303 mm x 212 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi. Handritið liggur í öskju ásamt gömlu bandi.
Gamalt pappaband klætt handgerðum pappír frá 1772-1780 fylgir. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá séra Högna Ámundasyni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. janúar 1976.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn af Birgitte Dall í maí 1975.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780. Það band fylgir í öskju.