Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 165 b fol.

Sögubók ; Ísland, 1635-1645

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r)
Jökuls þáttur Búasonar
Athugasemd

Einungis niðurlag.

2 (1r-14v)
Hallfreðar saga vandræðaskálds
Titill í handriti

Hér byrjar Hallfreðs saga

Upphaf

Þorvaldur hét maður og var kallaður skiljandi …

Niðurlag

… og endum vær svo þessa sögu.

3 (14v)
Víga-Glúms saga
Athugasemd

Einungis upphaf. Varðveitt í AM 164 a fol.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Lítið skjaldarmerki í skreyttum kringlóttum ramma. Fyrir innan er tré með þremur akörnum, fangamark PK og kóróna efst // Ekkert mótmerki ( 2 , 4-5 , 7 , 9 , 12-14 ).

Blaðfjöldi
i + 14 + i blöð (294 mm x 190 mm).
Tölusetning blaða

Handritið er blaðmerkt.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 230-235 mm x 140-145 mm.
  • Línufjöldi er 37-39.
  • Bendistafir (v) á spássíum til að merkja vísur í texta.

Ástand

  • Krassað yfir niðurlag sögu á bl. 1r.
  • Krassað yfir upphaf sögu á bl. 14v.
  • Skorið hefur verið af horni blaðs 14, en það hefur ekki áhrif á texta.

Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Gissurarsonar, léttiskrift.

Band

Band frá 1974 (320 mm x 214 mm x 8 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi. Handritið liggur í öskju ásamt gömlu bandi.

Gamalt pappaband frá 1772-1780 fylgir. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

Fastur seðill (61 mm x 175 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: Hallfreðar saga með hendi Jóns Gissurssonar, úr bók (eldri en 1646) er ég fékk af séra Högna Ámundasyni.

Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Ferill

Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá séra Högna Ámundasyni (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. mars 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞÓS skráði 24. júní 2020.ÞS skráði 12. janúar 2009. DKÞ færði inn grunnupplýsingar 5. nóvember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar í 5. janúar 1886(sjá Katalog I 1889:135-136 (nr. 235) .

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í ágúst 1974.

Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780. Það band fylgir.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Slay, Desmond
Titill: , The manuscripts of Hrólfs saga kraka
Umfang: XXIV
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: , Hallfreðar saga
Ritstjóri / Útgefandi: Bjarni Einarsson
Umfang: XV
Lýsigögn
×

Lýsigögn