„Sagan af Víga-Glúmi.“
„Ingjaldur hét maður son Helga hins magra …“
„… Það er og mál manna að Glúmur hafi verið best um sig allmargra manna hér á Íslandi. “
Og lýkur hér saga Glúms.
7 kver:
Band (310 mm x 220 mm x 8 mm) er frá 1975. Spjöld eru klædd fínofnum striga. Grófari strigi er á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Pappaband (306 mm x 201 mm x 4 mm) frá 1772-1780. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Handritið liggur í öskju með eldra bandi.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 132. Það var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 163 e fol., AM 163 m fol., AM 163 n fol. og AM 181 i fol.
Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá Jóni Þorlákssyni sýslumanni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. janúar 1976.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í maí 1975.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780. Það band fylgir í öskju með handritinu.