Manuscript Detail
AM 163 r fol.
View ImagesEgils saga Skallagrímssonar; Iceland, 1650-1700
Contents
Egils saga Skallagrímssonar
“Saga af Eigli Skallagrímssyni sem bjó á Borg í Borgarfirði.”
“Á dögum Hálfdanar kóngs hins svarta voru xii kóngar í Noregi …”
“… ei höfum vér meira af honum að segja en hér er skrifað.”
“Og ljúkum vér svo þessari sögu af Eigli Skallagrímssyni. Finis.”
Niðurlag sögunnar er síðari viðbót; við skiptingu handritsins hefur blaðið sem texti niðurlagsins var á fylgt með upphafshluta næstu sögu (sjá: Uppruni, Spássíugreinar og aðrar viðbætur).
Physical Description
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross og 3 stórir hringir ( 5-10 , 13-14 , 21 , 25 , 29-31 , 33 , 34 , 35-36 , 41 , 44-45 , 50 , 52-54 , 59-61 ) // Mótmerki: Fangamark DM ( 1-4 , 11-12 , 15-16 , 17? , 18 , 19-20? , 26? , 27-28 , 32 , 37-38 , 40 , 42-43 , 46-49 , 51 , 55-58 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam með fangamarki AJ // Ekkert mótmerki ( 22-24 ).
- Upprunaleg blaðmerking: 1-61; blað 62 er innskotsblað og merkt síðar.
Níu kver.
- Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
- Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
- Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
- Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
- Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
- Kver VI: blöð 41-46, 3 tvinn.
- Kver VII: blöð 47-54, 4 tvinn.
- Kver VIII: blöð 55-61, 3 tvinn + 1 stakt blað.
- Kver IX: blað 62-aftara saurblaðs, 1 tvinn.
- Blettir eru víða á blöðum (sbr. t.d. 9r, 17r og 24r-25v ). Sums staðar er texti af þessum sökum illlæsilegur, sbr. spássíuskrif á blaði 9r. Blöð eru sums staðar svo skítug að það torveldar lestur, sbr. t.d. spássíuskrif á blaði 47r.
- Blek er misdökkt og sums staðar það ljóst að texti er illlæsilegur, sbr. t.d. spássíuskrif á blaði 9r og 16v.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 245-250 mm x 150 mm.
- Línufjöldi er ca 39-44.
- Griporð eru neðst í hægra horni blaða, afmörkuð með pennaflúri, sbr. t.d. blöð 1r-3r.
- Afmörkun innri og ytri spássíu er hugsanlega gerð með þurroddi.
- Kaflaskipting; 107 kaflar.
- Að mestu leyti skrifað af Þorleifi Kláussyni (sbr. seðil); fljótaskrift.
- Blað 62 og aftara saurblað eru innskotsblöð (1 tvinn); niðurlag sögunnar er skrifað á rektósíðu blaðs 62.
- Safnmark og upplýsingar um eldri skráningu er skrifað með hendi Kålunds á fremra band verso.
- Efnistilvísanir og athugasemdir eru víða á spássíum blaða, sbr. t.d. á blöðum 9r-31r.
Pappaband (336 mm x 216 mm x 17 mm) frá árunum 1772-1780 .
Strigi er á kili. Framan á kápu eru titill og safnmark skráð. Ljós safnmarksmiði er á kili.
- Seðill (42 mm x 164 mm) með hendi Árna Magnússonar, er á milli fremra kápuspjalds og blaðs 1r: “Egils saga Skallagrímssonar með hendi séra Þorleifs Kláussonar.”
History
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 132. Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 163 o fol. og AM 163 p fol.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. febrúar 1975.
Additional
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 22. desember 1885 í Katalog I; bls. 132 (nr. 220), DKÞ grunnskráði 30. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 6. janúar 2009; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS skráði 23. júní 2020.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
Author | Title | Editor | Scope |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Egils saga Skallagrímssonar. Bind I. A-redaktionen, | ed. Bjarni Einarsson | 2001; 19 | |
Jon Gunnar Jørgensen | The lost vellum Kringla, | 2007; XLV | |
Philip Lavender | “Saxo in Iceland again : Vermundar þáttur og Upsa”, Opuscula XVI | 2018; p. 149-177 | |
Desmond Slay | The manuscripts of Hrólfs saga kraka, | 1960; XXIV | |
Þórður Ingi Guðjónsson | “Fjórða gerð Gísla sögu”, Saltari stilltur og sleginn Svanhildi Óskarsdóttur fimmtugri 13. mars 2014 | 2014; p. 10-11 |