Einungis niðurlag sögunnar sem krassað hefur verið yfir; illlæsilegt.
„Hér byrjast Bandamanna söguþátt. 1. Kap.“
„Ófeigur hét maður. Hann bjó norður í Miðfirði …“
„… Jafnan hélst vinátta þeirra feðga með góðri frændsemi og lýkur hér þessari sögu.“
Niðurlag sögunnar er síðari viðbót; við skiptingu handritsins hefur blaðið sem texti niðurlagsins var á fylgt með upphafshluta næstu sögu (sjá: Uppruni, Spássíugreinar og aðrar viðbætur).
Tvö kver:
Pappaband (334 mm x 214 mm x 7 mm) er frá 1772-1780.
Safnmark og titill er skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Seðill (46 mm x 170 mm) með hendi Árna Magnússonar er á milli fremra kápuspjalds og blaðs 1r.: „Bandamanna saga. Með hendi séra Þorleifs Kláussonar.“
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 131. Það var áður hluti af stærra handriti sem innihélt einnig AM 163 p fol. og AM 163 r fol. >
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. júní 1974.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 22. desember 1885 í Katalog I; bls. 131 (nr. 217),DKÞ grunnskráði 29. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 5. janúar 2009. ÞÓS skráði 23. júní 2020.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.