„Sagann af Búa Esjufóstra.“
„Helgi bjóla son Ketils Flatnefs nam Kjalarnes á millum Botnsár og Leirvogsár“
„Frá Búa Andríðarsyni er komin mikil ætt.“
Og ljúkum vér hér sögu Kjalnesinga.
Jökuls þáttur Búasonar er felld inn í söguna sem heldur áfram á bl. 16r (línur 13-28) sem er viðbótarblað.
Sagan er komin úr handriti sem hlutað var í sundur. Fyrsta blað sögunnar er viðbót í stað blaðs sem við skiptinguna hefur fylgt niðurlagi sögunnar á undan (sjá uppruni).
„ [skrifað á spássíu:] Hér byrjar af Jökli að segja“
„Þar var maður er Jökull hét“
„tóku þau Kongdóm eftir hann of ríkið“
og lýkur þar frá honum að segja.
Sagan er felld inn í Kjalnesinga sögu. Niðurlag sögunnar er á viðbótarblaði.
Pappír með vatnsmerkjum.
4 kver:
Pappaband frá árunum 1772-1780 (308 mm x 202 mm x 6 mm).
Framan á kápu eru titill og safnmark skráð. Blár safnmarksmiði á kili .
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 130. Það var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 163 e fol., AM 163 m fol., AM 164 b fol. og AM 181 i fol.
Bókin sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá Jóni Þorlákssyni sýslumanni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. júní 1974.
Bundið Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.