„Hér byrjast sagan af Bárði Snæfellsás.“
„Dumbur hefur kóngur heitið …“
„… Ei er þess getið að Gestur hafi börn átt. “
Og endast svo sagan af Bárði Snæfellsás.
„Saga af Hörði og hans fylgjurum, þeim Hólmverjum.“
„Á dögum Haralds hins hárfagra byggðist mest Ísland …“
„… hafa jafnmargir í hefnd verið drepnir sem eftir Hörð. “
Og lúkum vér svo Hólmverja sögu.
„Ölkofra þáttur.“
„Þórhallur hét maður. Hann bjó í Bláskógum á Þórhallastöðum …“
„… og hélst það meðan þeir lifðu.“
Og lýkur þar Ölkofra þætti.
Fjögur kver:
Band (318 mm x 215 mm x 12 mm) er frá 1974. Spjöld eru klædd fínofnum striga. Grófari strigi er á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Handritið er skrifað á Íslandi líklega 1650-1678 en það er tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 128. Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 123 fol., AM 164 f fol., AM 163 h fol. (í þessari röð) og líklega AM 167 fol. (framan eða aftan við).
Bókin sem handritið tilheyrði var í eigu Magnúsar Kortssonar í Árbæ (sbr. seðil í AM 167 fol.), en Árni Magnússon fékk hana frá Hákoni Hannessyni (sbr. seðil í AM 163 h fol.).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júní 1975.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 21. desember 1885 í Katalog I; bls. 129 (nr. 211), DKÞ grunnskráði 3. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 19. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.
Viðgert 1997.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í febrúar 1974. Eldra band fylgir.